amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:01
 
 
Fuglahvísl birtist 8. september 2010 klukkan 13:23

Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar

Ráðgjafinn og tónlistarmaðurinn segja ekki stakt orð

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Stöð 2
Jóhannes Jónsson fékk 114 milljónir fyrir að hætta sem stjórnarformaður Haga en hann hafði sjálfur sett móðurfélagið, 1998, á hausinn.

Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.

Svo gerist það að upp kom einhver ótrúlegasti samningur frá bankahruni þegar upplýst var að Jóhannes Jónsson hefði gert „starfslokasamning“ við Arion banka þegar hann vék úr stjórn Haga. Mun það vera fyrsti starfslokasamningurinn sem gerður er við stjórnarmann í íslensku fyrirtæki því að öllu jöfnu eru þess konar samningar gerðir við forstjóra eða aðra launamenn - aldrei stjórnarformenn. Smaningurinn skilaði Jóhannesi 114 milljónum í aðra hönd auk sumarhúss, íbúðar og bifreiðar. Samkvæmt því er Jóhannes þá einnig hæst launaði stjórnarformaður landsins en laun fyrir stjórnarsetu eru að öllu jöfnu ekki há enda stjórnarmenn fulltrúar eigenda en ekki starfsmenn félaga.

Hvað sögðu leigupennarnir um þennan samning? Ekki stakt orð. Þögnin er sérstaklega æpandi því ráðgjafinn seinheppni hefur skrifað ófáar greinarnar til varnar útrásarvíkingum þar sem hann leggur upp með að ekkert hafi breyst frá hruni. Hvernig getur sá sem svo skrifar þagað um starfslokasamning Jóhannesar?

Tónlistarmaðurinn óskriffæri hefur sem leigupenni tekið miklum umskiptum í ritfærni sinni. Hann vitnar nú í heimsbókmenntir, notar forníslensku og skrifar texta með lögfræðilegu orðalagi. Sá hinn sami þegir nú þunnu hljóði yfir 114 milljón króna gjöf Arion banka til Jóhannesar.

Þögn leigupennanna um starfslokasamninginn er það sannindamerki sem þeir fáu, sem enn efuðust um launagreiðslurnar, voru að bíða eftir.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX