amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:15
 
 
Fuglahvísl birtist 7. september 2010 klukkan 22:47

Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðar­atkvæða­greiðslunni?

Icesave samningur Svavars fékk sama fylgi og Ástþór Magnússon til forseta

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðarmanni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn. Svavar er þessu ósammála og skrifar fjölda greina þar sem hann gefur lesendum áhugaverða innsýn í hugarheim þeirra sem gert hafa verstu samninga í sögu lands síns og svo hlotið algjöra höfnun í atkvæðagreiðslu um málið.

Alþingi
Icesave samningur Svavars Gestssonar fékk jafn mikið fylgi og Ástþór Magnússon fékk til forseta 2004. "Almenn ánægja var víða" segir Svavar.

Svavar gengur svo langt að gorta sig af miklum árangri sínum í Icesave málinu. Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort hans nánustu ættingjar eða vinir hafi ekki enn þorað að segja honum frá því að 98% þjóðarinnar höfnuðu alfarið „árangrinum“? Hefur enginn sagt Svavari að allir þeir sem komu að málinu hafi síðan reynt að þvo það af sér með öllum tiltækum hreinsiefnum? Hafi enginn þorað að upplýsa Svavar þá skiptir nokkru að gera það sem fyrst áður en hann birtir fleiri greinar. Í nýjustu grein hans sagði:

Þegar ég skilaði niðurstöðu Icesave-samninganna vorið 2009 var almenn ánægja með niðurstöðuna víða,

Smáfuglarnir efast ekki um almenna ánægju hjá þeim 1,9% sem kusu með Icesave skuldbindingum sem Svavar reyndi að hengja um háls þjóðarinnar. En því miður voru 98% hópsins á því að svo væri ekki og höfnuðu niðurstöðunn alfarið. Gamall smáfugl hélt því lengi fram að þessir 1,9% hefðu skuldað Svavari greiða frá því að hann var bitlingastjóri Alþýðubandalagsins því fjölmiðlar fundu engann sem vildi gangast við stuðningi við samkomulagið.

Sjálf ríkisstjórnin, sem flutti frumvarpið, mætti ekki á kjörstað!

Til samanburðar má minnast þess að stuðningur við Icesavesamning Svavars Gestssonar var jafn mikill og stuðningur við Ástþór Magnússon til forseta árið 2004. Munurinn er hins vegar sá að Ástþór áttar sig á því að það var ekki almennur stuðningur við hann í embættið á meðan Svavar segir að „almenn ánægja hafi verið með niðurstöðuna víða“.

Er ekki kominn tími til að segja Svavari frá þjóðaratkvæðagreiðslunni?

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX