Már vildi lána og lána þvert á það sem bankastjórar Seðlabankans gerðu
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabankastjóra en í Viðskiptablaðinu sagði:
Myndband af Má Guðmundssyni seðlabankastjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum. Meðal annars er vitnað í frétt Fréttablaðsins frá því í nóvember 2008 þar sem skilja má ummæli Más þannig að hann vildi að ríkið aðstoðaði bankana við að greiða skuldir sínar. Daginn eftir birtist leiðrétting í blaðinu þar sem þessi skilningur var leiðréttur.
Tvær athugasemdir verður að gera við mola Viðskiptablaðsins. Í fyrsta lagi var Már meðlimur í Fylkingunni í yfir áratug og því ekki rétt að þetta hafi verði á hans „yngri árum“. Þá var Már orðinn fullnuma í hagfræði frá erlendum háskólum. Már taldi því bæði sem fullorðinn einstaklingur og fullnuma í hagfræði að Íslendingum væri best borðið með kommúnískt skipulag samkvæmt hugsjónum Trosky og fjórða alþjóðasambandinu.
Í öðru lagi þá hefði verið heppilegra fyrir lesendur Viðskiptablaðsins að fá að lesa hina svokölluðu leiðréttingu. Í fyrri fréttinni kom fram að Már vildi að bönkunum hefði verði hjálpað að greiða skuldir sínar og þar af leiðandi var rangt staðið af málum fyrir bankahrunið. Leiðréttingin staðfestir í raun þessi ummæli en breytir þeim ekki. Í stað þess að segja „hjálpa bönkunum við að greiða skuldir sínar“ segir hann „heppilegast að stjórnvöld í viðkomandi löndum hefði unnið saman um lausafjárstuðning“. Eftir stendur að Már hefði þurrausið gjaldeyrisforða landsins og skilið eftir skuldasúpu í tilraun hans til að bjarga bönkunum.
Orðrétt var leiðréttingin í Fréttablaðinu eftirfarandi:
„Hann [Már] segir að í erindi sínu hafi hann talið heppilegast að stjórnvöld í viðkomandi löndum hefðu unnið saman um lausafjárstuðning og önnur viðbrögð til stuðnings íslensku bönkunum, ekki síst í ljósi þess að bankarnir hafi ekki verið gjaldþrota, heldur í greiðsluerfiðleikum í erlendri mynt, þeir hafi verið stórir og starfað yfir landamæri auk þess að vera kerfislega mikilvægir. Þetta hafi hins vega ekki gerst. “Í þeim skilningi má kannski segja að viðbrögðin hafi verið röng. Ég lagði hins vegar ekkert mat á hverju eða hverjum það var að kenna, öðru en þá kannski regluverkinu, og síst af öllu lagði ég nokkurn dóm á sérstakar aðgerðir íslenskra stjórnvalda enda ekki viðfangsefni erindisins„
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort þeir sem öskruðu sig hása yfir veru Davíðs Oddssonar í Seðlabankanum viti af því að sá sem tók við, Már Guðmundsson, vildi ólmur ganga margfalt lengra en Davíð gerði í aðstoð sinni við útrásarbankana? Smáfuglarnir telja fullsannað að hefði þeirra Davíðs, Ingimundar og Eiríks ekki notið við í bankanum, og þeirra í stað hefði Már tekið ákvarðanir, að þá væri gjaldeyrisforðinn fyrir löngu upp urinn og vandi Íslands margfaldur á við það sem nú er - svo vægt sé til orða tekið.
Að endingu er rétt að birta myndbandið sem Viðskiptablaðið gerir að umtalsefni sínu og þúsundir netverja hafa horft á á YouTube myndbandavefnum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.