amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:15
 
 
Fuglahvísl birtist 7. september 2010 klukkan 17:32

Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera

Nær engin fyrirtæki seld í opnu og gegnsæju söluferli eins og lög kveða á um

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Ekkert er að marka orð Steingríms J. Sigfússonar. Nær öll fyrirtæki sem opinberir bankar hafa tekið yfir voru seld leynilega og fóru ekki í opið útboð.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstristjórn sem nú situr og kennir sig við áðurnefnda velferð. Smáfuglarnir sjá að eftirtalin fyrirtæki voru seld bakvið tjöldin og fóru ekki í opið söluferli:

Icelandair
Húsasmiðjan/Blómaval/Ískraft/HG Guðjónsson
Teymi
Icelandic
Caterpillar
Zara
Top Shop
All Saints
SMS Færeyjum
365 Fjölmiðlar
Plastprent
Vodafone
EJS
Skýrr
Hugur/AX
Parlogis

Þetta eru 20 fyrirtæki og sum hver þau stærstu á Íslandi í sinni grein. Öll voru þau seld með vafasömum aðferðum sem þingmenn eru nú fyrst að átta sig á eins og sjá má á umræðum á Alþingi í morgun. Smáfuglarnir skoða áfram og sjá að listinn lengist ef horft er á hvaða fyrirtæki hafa verið tekin yfir af bönkum hins opinbera og eru nú í rekstri þeirra.

Hagar/1998
Ingvar Helgason
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar
Hekla
Penninn Eymundsson
Landic Property
Þyrping
Laugaakur (fasteignafélag)
Rivulus (fasteignafélag)
Hafnarslóð (fasteignafélag)
Sjóvá
B.M Vallá
Steypustöðin
Askja
Askar capital
Stoðir/ FL Group
Reitir Fasteignafélag
Atorka

Hér bætast við risavaxin fyrirtæki sem sum hver eru í markaðsráðandi stöðu á sínu sviði. Nefna smáfuglarnir hér aðeins þau fyrirtæki sem eru stór og hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og telur listinn 18 fyrirtæki. Ótalin eru tugir ef ekki hundruðir minni félaga sem ekki hafa náð kastljósi fjölmiðla.

En hvað situr eftir? Hvaða fyrirtæki voru seld í opnu söluferli? Sá listi er örstuttur og telur fjögur fyrirtæki.

Árvakur
Hertz Bílaleiga
Skeljungur
Tal

Var það þetta sem búsáhaldabyltingin sá fyrir sér? Að gamla Alþýðubandalgið kæmist að kjötkötlunum og hæfi stórfelld afskipti af atvinnulífinu eins og það leggur sig. Bjóst einhver við því að nær aldargamlir stjórnmálamenn tækju til við að handstýra eignarhaldi stærstu fyrirtækja í landinu?

Sömu vinstrimönn hafa árum saman sakað stjórnir Davíð Oddssonar um að hafa staðið illa að sölu Landsbankans og Búnaðarbankans. Allt voru það ósannaðar ásakanir. Ofangreindur listi fyrirtækja í höndum vinstrimanna er ekki órökstuddur og ekki ásökun heldur bláköld staðreynd. Hvað segja vinstrimenn um það? Engin opin útboð? Ekkert söluferli? Og allar reglur bankasýslu ríkisins þverbrotnar?

Smáfuglarnir benda á að dagljóst er að ekki verður við þetta búið öllu lengur. Afskipti hins opinbera hérlendis minna á lönd austan járntjalds. Engin von er til þess að atvinnulífið rétti úr kútnum ef það er allt fast í krumlu hins opinbera. Við þessu verður að bregðast eigi síður en strax.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX