Gerir alvarlegar athugasemdir við sölu Landsbankans á Vestia
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtakssjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignarhaldsfélagið Vestia til Framtakssjóðs Íslands.
Í reglum bankasýslu ríkisins, sem stofnuð var sérstaklega til að hafa eftirlit með viðskiptaháttum hinna opinberu banka, segir að selja þurfi fyrirtæki í opnu og gegnsæju söluferli. Ekkert slíkt átti við þegar ákveðið var á lokuðum fundi að selja Framtakssjóðnum þann fjölda félaga sem innan Vestia eru. Fyrir það gat Steingrímur J. Sigfússon ekki svarað og því ljóst að leyndarhyggja og brölt tíðkast enn hjá Alþýðubandalaginu.
Óla Birni fylgdu margir þingmenn að málum og var ánægjulegt að sjá t.d. Guðlaug Þór Þórðarson styðja þétt við bakið á Óla Birni í umræðum morgunsins. Umræðurnar minntu smáfuglanna á þann tíma þegar sjálfstæðismenn tóku slaginn og stóðu vörð um atvinnulífið og fólkið sem í því starfar.
Smáfuglarnir sjá að Óli Björn er af gamla skólanum og hikar ekki við að taka slaginn. Hann er einn fárra úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins sem skammast sín ekki fyrir þá skoðun að atvinnulífið eigi að vera í höndum einstaklinganna en ekki hins opinbera.
Hitt er svo verra að hótanir Þorgerðar Katrínar um að snúa aftur á Alþingi hefðu þær afleiðingar að Óli Björn færi af þingi enda situr hann nú sem varamaður fyrir Þorgerði. Meðal sjálfstæðismanna er því vart trúað að Þorgerður muni fella Óla Björn út af þingi og taka þar sjálf sæti án þess að endurnýja umboð sitt meðal flokksmanna og í kosningum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.