amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:11
 
 
Fuglahvísl birtist 6. september 2010 klukkan 13:48

Er Jón Baldvin að hóta því að fara aftur í prófkjör? Aftur í 13. sæti?

Jóni Baldvin telur sig enn skipta máli

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Jón Baldvin Hannibalsson var gestur í þætti Egils Helgasonar á RÚV. Jón hefur lengi átt þar fast sæti og er reglulega kallaður til þegar hann fær einhverjar furðulegar hugmyndir. Sérstaklega fær hann útsendingartíma ef hann ætlar sér í prófkjör eða þarf að vekja athygli á sér af öðrum ástæðum. Nú eru það einhver 5 skilyrði sem Jón Baldvin telur að ríkisstjórnin verði að uppfylla og ef ekki þá...

Sjónvarpið
Jón Baldvin Hannibalsson í Silfri Egils. Hverju hótar Jón? Að fara aftur í prófkjör?

Smáfuglarnir velta fyrir sér, þá hvað? Er Jón Baldvin að hóta því að fara aftur í prófkjör? Telur hann að núverandi stjórn Samfylkingarinnar óttist slíka hótun? Jóni Baldvini var rækilega hafnað af samfylkingarmönnum í síðasta prófkjöri og lenti þar í 13. sæti. Samt taldi Jón, og Egill, að þá væri tíminn kominn. Jón Baldvin yrði að koma aftur til leiks eftir bankahrunið og leiða þjóð í vanda.

Því miður reyndist enginn áhugi á endurkomu Jóns hjá öðrum en Agli og Jóni sjálfum. Því spyrja smáfuglarnir hverju hann hótar nú? Ætlar hann aftur í prófkjör? Og ef svo, ætlar hann að gera betur en síðast og ná nú 12 sætinu?

Egill og Jón Baldvin gleyma því kannski að Jón er sjötugur maður og ungt fólk man ekki eftir honum. Margir yngstu smáfuglanna þekkja Jón sem „gamla manninn sem er stundum í Silfri Egils“.

Smáfuglarnir eru þeirrar skoðunar að stjórnmálamenn verði að þekkja vitjunartíma sinn. Jón Baldvin er búinn að reyna endurkomu sem undirbúin var af fullum krafti með aðstoð Egils Helgasonar. Sú endurkoma mistókst hraparlega. Margir af þeim sem voru ofar en Jón Baldvin í síðasta prófkjöri fæddust um það leyti sem Jón varð fimmtugur!

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX