amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:55
 
 
Fuglahvísl birtist 6. september 2010 klukkan 11:56

Hver gerir kyrrstöðusamning við eigna- og rekstrarlaust félag?

Samningur Arion við Gaum sagður óskiljanlegur

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
RÚV
Jón Ásgeir Jóhannesson einn eigenda Gaums.

Smáfuglarnir spyrja sig oft að því hvort fjölmiðlar séu orðnir með öllu gagnrýnislausir á það sem á borð þeirra er lagt. Kyrrstöðusamningur Gaums, félags Baugsfeðga, hefur verið til umfjöllunar að undanförnu og hafa margir fjölmiðlamenn látið segja sér að slíkur samningur sé til að fyrirtækið „fái rúm til að endurskipuleggja rekstur sinn og efnahag“ og á meðan haldi bankinn að sér höndum í innheimtu.

Hvaða rekstur þykist Gaumur vera að endurskipuleggja? Það er enginn rekstur í félaginu og fyrirtækið kemur hvergi að neinum rekstri. Hvaða efnahag er Gaumur að endurskipuleggja? Félagið er nær alfarið eignalaust og borin von er til þess að Baugsfeðgar leggi félaginu til aukið eigið fé enda færi það beint í að greiða skuldir.

Engin sýnileg rök eru fyrir því að gera kyrrstöðusamning við Gaum enda nær ekkert í félaginu sem er hægt að endurskipuleggja eða breyta. Sagt er í atvinnulífinu að galið sé að gera slíkan samning við Baugsfeðga sem þekktir eru fyrir að skjóta undan eignum sbr. lúxushús Jóhannesar Jónssonar á Flórída sem fært var snögglega í sér félag í Banaríkjunum til að forða því frá þeim aðilum sem Jóhannes skuldar hérlendis.

hvitbok.vg
Glæsihýsi Jóhannesar Jónssonar í Flórída sem flutt var í bandarískt félag til að forða því frá íslenskum skuldheimtumönnum.

Við bætist svo að eigendur Gaums, t.d. Jón Ásgeir Jóhannesson, hafa sagt fyrir rétti í London að Gaumur sé verðlaust félag og taldi hann hlutabréf sín í félaginu 0 kr virði. Hvernig dettur banka í hug að gera kyrrstöðusamning við þá sem telja félagið einskis virði?

Eftir stendur þá spurningin; hvers vegna var gerður kyrrstöðusamningur við Gaum?

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX