Umboðsmaður skuldara snöggur til - eru Baugsfeðgar á sérkjörum?
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, var ekki lengi að taka til hendinni þegar fréttir bárust af ótrúlegum samningum Baugsfeðga við Arion banka og Landsbankann. Feðgarnir höfðu gert „kyrrstöðusamning“ sem veldur því að bankinn aðhefst ekkert í innheimtu skulda sinna á Gaum sem er félag Baugsfeðga. Almenningur nýtur ekki slíkra kjara. Vísir.is ræddi við Ástu Sigrúnu:
Orðið kyrrstöðusamningur, sem er þýðing á enska hugtakinu „stand-still agreement.“ Hugtakið þekkist ekki í íslenskri lögfræði en umboðsmaður skuldara hefur ákveðið að rita lánardrottnum fjárfestingarfélagsins Gaums og Björgólfs Thors Björgólfssonar bréf til að óska eftir skýringum.
Um er að ræða samkomulag um að höfða ekki mál og fullnusta ekki ákvæði í áður gerðum samningum. Í sinni einföldustu mynd þýðir þetta að bankinn gengur ekki að skuldaranum og krefst greiðslu. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, segir að við fyrstu sýn sé um að ræða úrræði sem þekkist almennt ekki í íslensku viðskiptalífi. Samkvæmt lögum um umboðsmann skuldara getur umboðsmaður óskað eftir upplýsingum hjá fyrirtækjum um öll mál og er þeim skylt að svara erindi embættisins.
„Ég sá þessa frétt og hún vekur miklar spurningar um þessi vinnubrögð. Og ég tel að þetta sé eitthvað sem þarf að skoða,“ segir Ásta Sigrún. Hvernig hyggstu beita þér í málinu? „Það sem ég mun gera er að senda skriflega fyrirspurn til Arion banka og Landsbankans um þessa kyrrstöðusamninga, hvers eðlis þeir eru, eru einstaklingar sem njóta þessara kjara og ég mun óska eftir skriflegum svörum.“
Smáfuglarnir sjá að Ásta Sigrún er röggsamur umboðsmaður skuldara sem tekur til óspilltra málanna. Hún lætur það ekki skipta máli þó Baugsfeðgar eigi í hlut þegar kemur að því að sinna hlutverki sínu. Dettur einhverjum í hug að Runólfur Ágústsson, vinur Árna Páls Árnasonar, hefði tekið svona á málum?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.