amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:07
 
 
Fuglahvísl birtist 6. september 2010 klukkan 10:27

Fréttablaðinu enn haldið uppi af Högum

Helgarblað sneisafult af auglýsingum Haga

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lásu helgarblað Fréttablaðsins og sáu að fátt hefur breyst þó pabbi eigenda Fréttablaðsins sé nú farinn úr stól stjórnarformanns Haga. Töldu margir að við það tilefni yrði breyting á auglýsingamálum Haga og misnotkun á fyrirtækinu tæki enda. Ekki virðist neitt hafa breyst ef marka má helgarblað Fréttablaðsins.

hagar
Ætlar Finnur Árnason að halda uppi fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs með auglýsingapeningum Haga? Viðbragða Steins Loga er beðið.

Vel getur þó verið að nú sé verið að nýta keypt auglýsingapláss sem samið var um í tíð Jóhannesar Jónssonar og erfitt er fyrir Haga að bakka frá. Það er þó talið hæpið í ljósi þess að nær aldrei eru gerðir fastir eða langir samningar um auglýsingabirtingar. Jafnvel er verið að semja um verð og stærð nokkrum klukkustundum áður en blöðin fara í prentun.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Steinn Logi Björnsson geri á næstu vikum og hvort hann hafi sömu bein í nefinu og Höskuldur H. Ólafsson sem setti Jóhannes Jónsson frá Högum þegar meðferð hans á félaginu keyrði um þverbak. Eitt stærsta hneykslið hefur verið birting 97% auglýsinga Haga hjá syni Jóhannesar, Jóni Ásgeiri. Smáfuglanir trúa því ekki að Steinn Logi ætli sér að verða nýr Jóhannes Jónsson og halda fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs gangandi?

Aðeins tíminn mun leiða í ljós hvernig Steinn Logi tekur á málum. Fyrsta helgarútgáfa Fréttablaðsins eftir brotthvarf Jóhannesar lofar ekki góðu. Getur verið að Finnur Árnason, forstjóri Haga og einkavinur Baugsfeðga til 12 ára, ráði enn för?

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX