amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:21
 
 
Fuglahvísl birtist 8. september 2010 klukkan 14:51

Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun

Þorgerður og maður hennar sluppu undan ábyrgð á 1,8 milljarða skuldum

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðismanna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi. Á Pressunni segir:

Það er ein af mörgum ástæðum fyrir því að Davíð Oddsson hugsar ekkert mjög hlýlega til hennar, svo vægt sé að orði kveðið. Þorgerður gagnrýndi líka Seðlabankann harkalega eftir hrun og vildi að Davíð yrði látinn taka pokann sinn. Geir Haarde þorði ekki einu sinni að hugsa um það, en Þorgerður Katrín sagði það. Nafn hennar er skrifað með gylltu letri í svörtu bókina í Hádegismóum.

Hvers vegna segir Pressan að Þorgerður hafi aðeins gagnrýnt Seðlabankann eftir hrunið? Hið sanna er þvert á móti. Þorgerður gerði harða sókn að Davíð Oddssyni þegar hann varaði ríkisstjórnina við því hvert stefndi en það gerði hann nokkrum sinnum áður en bankarnir fóru á hausinn. Ekki þýðir að setja Þorgerði í hóp með öðrum sem urðu fúlir út í Seðlabakann þegar allt fór á versta veg í bankakerfinu því Þorgerður var í ríkisstjórn og hlustaði á aðvaranir Davíðs. Hún skellti þar við skollaeyrum og viðhafði hrokafull gífuryrði. Þorgerður er sú sem byrgði ekki brunninn þó ítrekað hefði verið bent á nauðsyn þess.

ÞKG
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og maður hennar sluppu undan 1.8 milljarða lánum sem þau fengu að færa í einkahlutafélag með sérstöku leyfi bankastjóra Kaupþings.

Þá vissi reyndar enginn um að Þorgerður og maður hennar hefðu 1,8 milljarða undir því að bankarnir færu ekki á hausinn og því vildi Þorgerður að haldið yrði áfram að dæla peningum í bankana fram í rauðann dauðann og mátti ekki til þess hugsa að Davíð hefði rétt fyrir sér - sem svo reyndist vera.

Pressan reynir að gera Þorgerði að þeim sem talaði af viti meðan Geir Haarde tók ekki á málum. Aftur fer Pressan rangt með. Þorgerður var þögul eftir bankahrun enda áttaði hún sig á því ásamt eiginmanni sínum að þau hefðu tapað 1.800 milljónum og að þau hefðu gert harða sókn að þeim sem varaði við. Þau fengu sérmeðferð hjá Kaupþingi þar sem bankastjóri o.fl. gáfu þeim sérstakt leyfi til að færa þessar skuldir í einkahlutafélag og því sluppu þau með öllu við það sem því fylgir að fá 1.800 milljónir að láni. Þau sluppu undan allri ábyrgð vegna klíkuskapar.

Þorgerður er þannig holdgervingur þess sem átti að losa sig við með „Nýju Íslandi“ og „breyttum tímum“. Ábyrgðaleysið og hrokinn sem mótmælendur vildu ekki áfram kemur heim og saman í Þorgerði. Hún hunsaði viðvaranir fyrir hrun og vildi kinda bálið áfram með fé almennings, hún fékk sérmeðferð í bankakerfinu enda þá ráðherra og nú eru þau hjón skuldlaus á meðan venjulegt fólk er keyrt í gjaldþrot.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Pressunni gangi til með þjónustu við Þorgerði Katrínu. Fyrir stuttu voru fjögur löng viðtöl birt við Þorgerði sem er einsdæmi í sögu Pressunnar og nú er nafnlaust unnið að endurkomu hennar í pólitík.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX