Furðar sig á sérkjörum Baugsfeðga hjá bönkum - almenningur á öðrum kjörum
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lesa á vefsíðu hins hlutlausa þáttastjórnanda, Egils Helgasonar, að hann furðar sig á þeirri meðferð sem útrásarvíkingarnir fá í bankakerfinu en undanfarna daga hafa sérkjör Baugsfeðga komið fram í dagsljósið og ljóst að Finnur Sveinbjörnsson hefur gert hreint ótrúlega samninga við feðgana fyrir hönd bankans. Nýr bankastjóri hefur svo verið í því að moka flórinn og hefur gert það rösklega og af festu.
Egill segir á síðu sinni:
Maður skilur ekki alveg fréttir sem segja manni að útrásarvíkingar séu meðhöndlaðir með silkihönskum.
Björgólfur Thor fær niðurfelldar persónulegar ábyrgðir á Íslandi og ef áætlanir um framtíð Actavis ganga eftir getur hann orðið margmilljarðamæringur aftur.
Jón Ásgeir og fjölskylda gera eitthvað sem kallast „kyrrstöðusamningur“ við Arionbanka. Það þýðir að ekki leggjast vextir á skuldir hans, hann fær að vera í friði með félag sitt sem nefnist Gaumur.
Fær almenningur í þessu landi svona trakteringar með sínar skuldir?
Nei, auðvitað ekki.
Smáfuglarnir sjá að Egill hefur tekið nýja afstöðu gagnavart Baugsfeðgum. Síðast þegar þeir áttu í baráttu þá lagðist Egill á árarnar með þeim og sagði opinberlega að hann væri orðinn þreyttur á málsókn á hendur þeim fyrir alvarleg efnahagsbrot.
Hins vegar sér Egill nú að málin á hendur Baugsfeðgum hrannast upp og varla líður sá dagur að nýjar upplýsingar komi fram sem sýna hin ótrúlegu verk þeirra í aðdraganda bankahrunsins. Búið er að stefna þeim fyrir dóm í Bretlandi og Bandaríkjunum og hérlendis fjallaði lengsta skýrsla Íslandssögunnar að mestu leyti um þá. Þá eru ónefnd stærstu gjaldþrot Íslandssögunnar, einkaþoturnar, lúxussnekkjur, 3 milljarða íbúðir og margt fleira.
Hitt er svo að smáfuglarnir taka aldrei þessu vant undir með Agli. Sérmeðferð sú sem Finnur Sveinbjörnsson útvegaði Baugsfeðgum hjá Arion banka er fyrir neðan allar hellur og með miklum ólíkindum þegar horft er á starfsreglur bankans á þeim tíma þegar samningarnir voru gerðir.
Viðbót kl 19:12: Finnur Sveinbjörnsson hefur gert athugasemdir við hvísl smáfuglanna og eru þær eftirfarandi:
Kyrrstöðusamningur Arion banka við Gaum, sem nýlega var upplýst um, var hvorki undirbúinn né undirritaður á starfstíma mínum í bankanum. Ég óska eftir því að Amx-vefurinn leiðrétti þegar fuglahvíslið frá kl. 11.41 (http://www.amx.is/fuglahvisl/15579/) og bendli mig aldrei framar við þennan samning.
Finnur Sveinbjörnsson,
fyrrverandi bankastjóri Arion banka
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.