amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:11
 
 
Fuglahvísl birtist 3. september 2010 klukkan 17:39

Gamlir kratar þurrkaðir út og konur verða undir

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Sjónvarpið
Jón Baldvin Hannibalsson.

Smáfuglarnir fylgjast vel með Evrópuvaktinni - vefsíðu sem Styrmir Gunnarsson og Björn Bjarnason ritstýra. Í pistli í dag veltir Styrmir fyrir sér hvort „gömlu kratarnir“ séu dauðir úr öllum æðum. Tilefnið er breytingar á ríkisstjórninni sem nú er skipuð gömlum Allaböllum fyrir utan Jóhönnu Sigurðardóttur. Af tíu ráðherrum eru níu uppaldir í gamla Alþýðubandalaginu. Það er því rétt að tala um ríkisstjórn Alþýðubandalagsins og Jóhönnu Sigurðardóttur.

Styrmir skrifar:

„Fulltrúar gamla Alþýðuflokksins innan Samfylkingar hafa verið þurrkaðir út úr ríkisstjórn. Augljóst er að fyrrum forystumenn Alþýðubandalagsins fagna þessari þróun og þarf ekki annað en líta á heimasíðu Svavars Gestssonar til þess að átta sig á því, þótt hann komi fögnuði sínum á framfæri með því að vitna í Pressuna. Þótt mjög sé nú af gömlum Alþýðuflokksmönnum dregið er þó ólíklegt að þeir taki þessari framvindu mála þegjandi. Spurningin er fyrst og fremst sú, hvort þeir geri það innan eða utan Samfylkingar. Sumir velta því fyrir sér, hvort þeir geti náð saman við ESB-sinna í Sjálfstæðisflokknum. Það er heldur ólíklegt en á þó eftir að koma í ljós. Kannski er þarna að opnast tækifæri fyrir einn fyrrverandi formann Alþýðuflokksins, sem enn hefur virkan áhuga á pólitík?“

Hér er Styrmir að velta því fyrir sér hvort sinn gamli vinur en pólitíski andstæðingur, Jón Baldvin Hannibalsson, ætli að nýta tækifærið. Þetta er ekki vitlaust því Jón Baldvin hefur alla tíð lagt mikla fægð á Jóhönnu Sigurðardóttur. Þegar þau voru saman í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks (Viðeyjarstjórninni) undir forystu Davíðs Oddssonar, logaði oft á milli þeirra. Jóhanna leitaði því skjóls hjá Davíð sem veitti henni ekki aðeins skjól heldur studdi hana þegar Jón Baldvin lagði til atlögu.

En Styrmir bendir einnig á að það séu ekki aðeins kratarnir í Samfylkingunni sem eiga undir högg að sækja hendur einnig konur:

„Innan Samfylkingar er augljóslega óánægja með lakari hlut kvenna í ríkisstjórn. Tilraunir Guðbjarts Hannessonar í Kastljósi í gærkvöldi til þess að setja þann þátt málsins í annað ljós með því að vísa til annarra trúnaðarstarfa kvenna á vegum Samfylkkingar eru gamalkunnar. Á þann veg tala allir karlar í stjórnmálum og hafa lengi gert, þegar þeir þurfa að útskýra lakari hlut kvenna!“

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX