Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Séra Þórir Stephensen hefur tekið sér fyrir hendur að eltast við þá, sem eru andvígir aðild Íslands að ESB, í þeim tilgangi að sýna fram á brotalamir í málflutningi þeirra. Hinn 3. september fjallar hann enn á ný um auglýsingu frá Samtökum ungra bænda frá 28. maí sl., þar sem stóð: Við viljum ekki senda afkomendur okkar í Evrópuherinn.

Í auglýsingunni var vitnað í ræðu, sem Angela Merkel, kanslari Þýskalands, flutti í Aachen í Þýskalandi 13. maí. Nú hefur sr. Þórir lagst í rannsóknir á ræðum kanslarans og finnur ekki tilvitnun í auglýsingunni í ræðunni.
Merkel sagði í ræðu sinni, að eftir björgun evrunnar ættu ESB-ríkin að snúa sér að því að stofna herafla undir merkjum Evrópusambandsins. Að Merkel vék að þessu verður ekki hrakið. Hitt er rétt hjá sr. Þóri, að orð kanslarans hafa skolast til í auglýsingu Samtaka ungra bænda. Þau birtu sem orð kanslarans skýringu á því, hvað felst í orðinu Evrópusambandsher.
Að sr. Þórir amist við því, hvernig auglýsingin er samin snýst meira um form en efni. Kjarni málsins er, að Merkel vill koma á fót sameiginlegum herafla ESB-ríkjanna.
Í grein sinni tekur sr. Þórir sér það hins vegar fyrir hendur, sem hann telur gagnrýnisvert hjá ungum bændum varðandi orð frú Merkel, að gera þeim upp skoðanir. Þeir hafi að vísu ekki nefnt orðið „herskyldu“ en auglýsing þeirra sé „samt lævísleg tilraun til að vekja upp ótta hér á landi um að herskylda gæti orðið eitt af því, sem aðild að ESB leiddi af sér.“
Sr. Þórir segir í grein sinni: „Einhverjum hefur að vísu dottið í hug að koma upp sameiginlegum her innan ESB, en það er fjarlægur möguleiki og háður samþykki allra aðildarríkjanna.“ Þessi „einhver“ er einmitt frú Angela Merkel. Deila sr. Þóris við unga bændur snýst um, hvort taka eigi mark á orðum hennar eða ekki.
Smáfuglarnir eru á því, að Samtök ungra bænda hafi betur í deilunni miðað við ítök Þjóðverja innan ESB. Vill sr. Þórir gera lítið úr frú Merkel eftir því hvort skoðanir hennar henta honum eða ekki?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.