Lánadrottnar OR stjórna för hins gjaldþrota fyrirtækis
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lásu fróðlega og vel unna úttekt í Morgunblaðinu þann 2. september eftir Einar Örn Gíslason blaðamann þar sem farið er yfir skuldastöðu Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar. Fram kemur að skuldir þessara fyrirtækja eru gríðarlegar og engann mælikvarða hægt að leggja á stöðuna sem gefur annað en slæma mynd af stöðunni.
Einar Örn bendir á athyglisverðan punkt í úttekt sinni en það er að t.d. OR hefur tæknilega séð ekki fulla stjórn yfir rekstri sínum þar sem lánadrottnar hafa mikil áhrif á ákvarðanir í fyrirtækinu. Þannig sögðu erlendir lánadrottnar OR að hækka gjaldskrá og við því var orðið. Í Morgunblaðinu segir:
Heildarskuldir Orkuveitunnar, samkvæmt árshlutauppgjöri frá því í júní, eru 233 milljarðar króna. Af þeirri upphæð eru tæpir 55 milljarðar á gjalddaga til og með júnílokum árið 2013. Sú tala er meira en tvöfaldar rekstrartekjur fyrirtækisins á öllu síðasta ári. Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum sögðu lánardrottnar Orkuveitunni að hækka gjaldskrána, annars yrði ekki samið um endurfjármögnun. Burtséð frá því að slík hækkun var að líkindum óhjákvæmileg sýnir beiðnin ein hver það er sem hefur völdin í „sambandinu“. Segja má að Orkuveitan sé upp á náð og miskunn lánardrottna sinna komin.
Smáfuglarnir velta fyrir sér fyrst svona er í pottinn búið hjá opinberum orkufyrirtækjum hvort ekki sé nær að leyfa erlendum einkaaðilum að eiga þessi fyrirtæki eða þá íslenskum einkaaðilum? Hvernig gætu einkaaðilar mögulega staðið sig verr en opinberir starfsmenn OR hafa gert í gegnum árin?
Eini munurinn er sá að hefðu einkaaðilar staðið að OR hefði fyrir löngu verið búið að taka af þeim fyrirtækið og færa öðrum sem kynnu betur með fé að fara. Eins hefðu lánadrottnar fyrir löngu sagt hingað og ekki lengra yfir bruðli yfirstjórnar og starfsmanna.
Hitt er svo að úttekt Morgunblaðsins sýnir að OR er í raun gjaldþrota fyrirtæki sem lenda mun í greiðsluþroti ef ekki komi til meira hlutafé eða yfirtöku kröfuhafa á fyrirtækinu. Varla ætla hin hálf gjaldþrota sveitafélög sem að OR standa að leggja þar til nýtt hlutafé? Væri það þá í fyrsta sinn sem vatni væri ausið úr tómum brunni.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.