Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður og landsfundarfemínisti, bendir á það á vefsíðu sinni að 9 af 10 ráðherrum í nýrri ríkisstjórn séu gamlir liðsmenn Alþýðubandalagsins. Fyrir öllum þeim sem muna eftir þeim flokki eru tíðindin hin verstu og með ólíkindum að það gerist árið 2010 að gamlir kommúnistar komist til valda á Íslandi. Tryggvi Þór segir:
9 af 10 ráðherrum ríkistjórnarinnar eru úr Alþýðubandalaginu.
Forsetinn er úr Alþýðubandalaginu.
Seðlabankastjóri er úr Alþýðubandalaginu.
Aðstoðarseðlabankastjóri er úr Alþýðubandalaginu.Datt í hug línan úr ljóðinu fagra: „The Lunatics Have Taken Over the Asylum“
Hafa ber í huga að ungt fólk sem í dag fylgist með þjóðmálum man ekki eftir kommúnistunum í Alþýðubandalaginu og voru t.d. formenn ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna að byrja í grunnskóla þegar flokkurinn lagðist af. Það skiptir því máli að halda til haga að eftir miklar deilur innan Sósíalistaflokksins árið 1968 þá var sá flokkur lagður niður og Alþýðubandalagið stofnað.
Félagsmenn Alþýðubandalagsins voru jafnan kallaðir allaballar og voru flestir stækir kommúnistar sem lögðust gegn einkaframtaki, frjálsu vali einstaklinga og vildu að ríkisvaldið stjórnaði öllu atvinnu- og mannlífi. Sérstaka athygli vöktu þeir fyrir bitlinga til hvers annars og var þar Svavar Gestsson fremstur meðal jafningja. Glöggir lesendur geta svo séð að þessi stefna hefur ekkert breyst og Ísland situr uppi með gamla kommúnista í ríkisstjórn.
Smáfuglarnir sjá að einu gleymir Tryggi Þór og það er að Svavar Gestsson sem gerði versta samning fyrir Íslands hönd í sögu þess er einnig úr Alþýðubandalaginu. Um Svavar sagði í Alþýðublaðinu í september 1981:
Eflaust eru allir þessir fjórir hinir mætustu menn, en flokksliturinn á þeim segir þó ákveðna sögu. Og hún er sú, að Svavar Gestsson félagsmálaráðherra er æði duglegur við að troða sínum flokksgæðingum að í stjórnkerfinu. Ef hann væri bara jafn duglegur og ötull við sitthvað annað.
Það eru nefnilega fleiri hæfir til trúnaðarstarfa i þjóðfélaginu en Allaballar. En það veit Svavar ekki — eða hvað?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.