Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hælast um af hinum glæsilega árangri, sem þau telja sig hafa náð við stjórn efnahagsmála. Opinberar tölur sýna hins vegar stöðugan samdrátt í efnahagslífinu, eins og Jón Magnússon, hrl. og fyrrverandi þingmaður, nefnir réttilega í pistli á vefsíðu sinni 3. september, þegar hann segir:

„Yfirlýsingar og hreystiyrði Jóhönnu og Steingríms um hve vel miði og allt sé nú með öðrum tón en áður í fjötrum Íhalds og Framsóknar eru í góðu samræmi við reikningskúnstir Sölva Helgasonar og frásagnir Vellygna Bjarna.
Hagstofan segir okkur samt að um samfellt samdráttarskeið hafi verið að ræða árið 2009 og fyrstu mánuði ársins 2010. Samdráttur landsframleiðslu árið 2009 varð 6.8% og fyrstu 6 mánuði ársins 2010 er samdráttur landsframleiðslu 7.3%. Það þýðir líka að lífskjörin í dag eru að verulegu leyti skuldsett annars væru þau til muna verri vegna þessa gríðarlega samdráttar.
Þjóðir heims miða við að sé landsframleiðsla neikvæð í 3 mánuði í röð þá sé kreppuástand. Hér hefur samdráttur landsframleiðslu verið samfelldur í 18 mánuði en Jóhanna og Steingrímur tala um það sem sérstakan árangur ríkisstjórnarinnar.“
Stjórnarherrar, sem hælast um af þessari stöðu, eru ekki á vetur setjandi.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.