amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:08
 
 
Fuglahvísl birtist 3. september 2010 klukkan 11:10

2/3 landsmanna vilja ekki Þorgerði Katrínu

Ástæðan sögð vera sérmeðferð Þorgeðrar og Kristjáns Arasonar í Kaupþingi

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir lesa í Viðskiptablaðinu að stór hluti landsmanna vilji ekki að Þorgerður Katrín snúi aftur á Alþingi. Samkvæmt könnun sem blaðið lét gera eru tæp 67% andvíg því að Þorgerður taki sæti á Alþingi. Í frétt VB segir:

ÞKG
2 af 3 landsmönnum vilja ekki að Þorgerður taki aftur sæti á Alþingi.

Í skýrslunni [rannsóknarnefndar Alþingis] var fjallað um stórar lántökur eiginmanns hennar sem starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþing. Þá skapaðist í einnig í kjölfarið nokkur umræða um stöðu Þorgerðar Katrínar sem verið hafði ráðherra í ríkisstjórn í aðdraganda bankahrunsins.

Þorgerður Katrín hefur hins vegar áður lýst því yfir að hún hyggist taka aftur sæti á Alþingi þegar þingmannanefnd Alþingis skilar skýrslu sinni nú í september.

Tæplega 67% landsmanna eru hins vegar ósátt við þá ákvörðun samkvæmt könnun MMR. Tæplega 18% eru sátt við ákvörðun Þorgerðar Katrínar að snúa aftur en um 15% eru hvorki sátt né ósátt.

Á þessu má sjá að aðeins 18% eru fyllilega sáttir við að Þorgerður taki sæti á Alþingi og því 82% sem ýmist eru á móti eða taka ekki afstöðu.

Þorgerður Katrín hlýtur að taka mark á þessum niðurstöðum. Hún hefur áður sagt að lýðræðisleg niðurstaða skipti miklu máli og að hún taki mark á því sem almenningi finnst. Af þeim ástæðum tók hún sér hlé frá þingmennsku meðan mál hennar væri í farvegi þingsins. Að sama skapi hlýtur hún nú að hlusta á niðurstöðu könnunar VB og víkja af þingi og bíða þess að sækja nýtt umboð í næstu kosningum.

Smáfuglarnir horfa einnig til Bjarna Benediktssonar sem litla stjórn virðist hafa á þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Mikil vinátta er á milli Bjarna og svo Þorgerðar Katrínar og Kristjáns Arasonar. Spennandi verður að sjá hvort Bjarni muni hunsa vilja landsfundar, kjósenda, flokksmanna og annnarra og styðja endurkomu Þorgerðar á Alþingi.

Hitt er svo einnig athyglisvert að maður Þorgerðar, Kristján Arason, var fyrir skömmu ráðinn til N1 sem er fyrirtæki í eigu fjölskyldu Bjarna Benediktssonar. Engu líkara en að Bjarni hafi tekið að sér að bjarga Þorgerði og Kristjáni.

Smáfuglarnir gera engar athugasemdir við að N1 vilji ráða til sín fyrrum yfirmann hjá Kaupþingi sem fékk allar ábyrgðir sínar á 1,8 milljarða lánum fluttar í einkahlutafélag ólíkt almenningi. Verra er að Bjarni ætli að styðja Þorgerði í að koma aftur eftir það sem á undan er gengið og skemma þannig fyrir Sjálfstæðisflokknum.

Bjarni má ekki gleyma því að Þorgerður var ráðherra í ríkisstjórn á meðan eiginmaður hennar hlaut sérmeðferð hjá Kaupþingi. Þorgerður úthrópaði m.a. Davíð Oddsson fyrir að vara ítrekað við því sem síðar varð.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX