Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Nú berast nýjar fréttir af furðulegum vinnubrögðum og blekkingum klíkunnar í kringum Jón Ásgeir Jóhannesson sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum fær enn að reka fjölmiðla í skjóli íslenskra banka. Nú koma þeir Hannes Smárason og Pálmi í Fons við sögu, en þeir gegna aðalhlutverki ásamt Jóni Ásgeiri í ákæru Glitnis banka á hendur Jóni Ásgeiri og klíku hans fyrir dómstóli í New York.
Er því haldið fram í Viðskiptablaðinu og bornar fyrir því heimildir sem blaðið telur traustar að þeir Hannes og Pálmi hafi vísvitandi reynt að villa fyrir hluthöfum í FL-Group (sem Davíð Oddsson kallaði að sögn Flenron). Þeir hafi bakað hluthöfum í FL-Group og lánardrottnum þess fyrirtækis gífurlegt tjón, m. a. með brellum í kringum Northern Travel Holding.
Hannes Smárason á eina frægustu setningu útrásaráranna: „Ég á þetta, ég má þetta,“ en hana sagði hann um borð í Flugleiðavél árið 2005.
Af þessu tilefni rifjast upp fyrir smáfuglunum vísa sem Þórarinn Eldjárn setti saman um þetta atvik:
Eitt menn sjá
ef þeir gá
og grufla í:Maður má
og maður á.
Munur er á því.
Smáfuglarnir telja ólíklegt að leigupennar klíkunnar, þeir Ólafur Stephensen, Ólafur Arnarson og Þorvaldur Gylfason, hafi þessa vísu eftir.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.