Netkönnun á netmiðli Baugsfeðga sýnir mikla andstöðu við Jóhannes
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir ráku augun í könnun í Fréttablaðinu í gær sem gerð var á Vísi.is daginn áður. Vísir er í eigu Baugsfeðga í gegnum eiginkonu Jóns Ásgeirs, Ingibjörgu Pálmadóttur. Spurt var hvort rétt hafi verið af Arion banka að reka Jóhannes Jónsson frá Högum. 75,4% svarenda svöruðu játandi en 24,6% svöruðu neitandi.
Nú vita smáfuglarnir ekki hversu margir tóku þátt, hvernig aldursdreifing þeirra var, búseta eða neitt annað enda eru netkannanir sem þessar oftar en ekki óvísindalegar. En hvað sem svo liggur að baki könnunni þá eru þrír af hverjum fjórum sem tóku þátt ánægðir með að Jóhannes Jónsson hafi verið rekinn frá Högum. Það eru mikil tíðindi þar sem Baugsfeðgar hafa alltaf gert út á vinsældir Jóhannesar.
Þetta kemur þvert á það sem Jóhannes hefur alltaf sagt um að Bónus sé svo vinsælt fyrirtæki með sjálfan sig í forsvari. Staðreyndin er sú að Bónus er vinsælt fyrirtæki og viðskiptavinir eru ánægðir með starfsfólk þess og vörur en bersýnilega gildir ekki það sama um Jóhannes Jónsson sem skilur eftir sig sviðna jörð gjaldþrota og óhófs ásamt syni sínum.
Kornið sem fyllir mælinn nú eru fréttir af ótrúlegum sérkjörum Jóhannesar hjá Arion banka þar sem hann fékk að halda sumarhúsi, íbúð og bíl þrátt fyrir að missa tökin á 1998 ehf og eiga því eðli máls samkvæmt að missa afnotarétt af eignum þess félags. Jóhannes fékk sérmeðferð á meðan bankinn tók fasteignir af öðrum sem stóðu ekki í skilum. Þeir sem ekki hétu Jóhannes Jónsson horfðu á eftir sínum íbúðum á nauðungaruppboð.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort almenningur, eða sá hluti sem tók þátt í könnun Vísis, hafi áttað sig á þessu og því segi nú þrír af fjórum svarendum já við því hvort reka eigi Jóhannes Jónsson?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.