amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:21
 
 
Fuglahvísl birtist 2. september 2010 klukkan 21:33

„Staðföst skoðun stjórnenda og starfsfólks að framangreindum markmiðum verði ekki náð án Jóhannesar“

Finnur Árnason sýndi 12 ára hollustu sína við Baugsfeðga árið 2009

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir muna eftir því þegar Finnur Árnason, forstjóri Haga, sagði þann 13. nóvember 2009 að engin leið væri fyrir Haga að ná markmiðum sínum án Jóhannesar Jónssonar sem eitt sinn var kenndur við Bónus. Orðrétt sagði Finnur:

Finnur Árnason forstjóri Haga.

Með því [endurskipulagningu 1998 ehf.] verður tryggt að Bónus verði áfram í forystu með að tryggja lágt vöruverð um land allt. Það er staðföst skoðun stjórnenda og starfsfólks að framangreindum markmiðum verði ekki náð án Jóhannesar. Hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda eru sameiginlegir og best tryggðir með þeirri lausn, sem nú er unnið að.„

Nú liggur fyrir að Hagar halda áfram án Jóhannesar eftir að Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka skar á tengsl feðganna við félagið og ógilti samning sem forveri hans í starfi hafði gert við feðgana.

Arion banki losaði Jóhannes af Högum til þess að tryggja félaginu áframhaldandi líf þar sem enginn fjárfestir fékst að félaginu á meðan Baugsfeðgar hefðu enn ítök í því. Mikilli orku hafði verið eytt í það að finna fjárfesta en ekkert gekk. Lokaniðurstaða bankans var að losa sig við Jóhannes.

Steinn Logi Björnsson, stjórnarformaður Haga.

Hvernig kemur þessi veruleiki heim og saman við orð Finns Árnasonar? Hvernig geta „hagsmunir félagsins, hagsmunir viðskiptavina, hagsmunir 2.500 starfsmanna og hagsmunir lánveitenda“ aðeins verið tryggðir með Jóhannesi Jónssyni þegar eigendur og kröfuhafar sem nú róa lífróður félagsins komast að niðurstöðu um að reka Jóhannes í þeirri von um að fá fjárfesta að félaginu?

Smáfuglarnir sjá á orðum Finns Árnasonar að hann er telur að Baugsmenn séu þeir einu sem geti rekið Haga þrátt fyrir að það hafi verið einmitt þeir sem settu móðurfélag Haga í 50 milljarða þrot.

Hitt er svo að allt þetta veit Steinn Logi Björnsson, nýr stjórnarformaður Haga, mæta vel og því er þess beðið með eftirvæntingu að sjá hvort hann hafi sömu bein í nefinu og Höskuldur H. Ólafsson og losi Finn Árnason, fulltrúa Baugsfeðga, frá Högum.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX