amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:18
 
 
Fuglahvísl birtist 3. september 2010 klukkan 10:01

Finnur Árnason áfram fulltrúi Baugsfeðga í Högum

Finnur heldur 365 miðlum gangandi eftir 12 ára hollustu við Jón Ásgeir

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sjá að nú beinist athyglin að Finni Árnasyni, forstjóra Haga, sem enn heldur stöðu sinni þrátt fyrir að loks hafi verið skorið á formleg yfirráð Baugsfeðga á Högum sem héldu völdum yfir fyrirtækinu þrátt fyrir að hafa keyrt móðurfélag þess, 1998 ehf, í ævintýralegt þrot með bruðli og óhófi. Gjaldþrot 1998 var um 50 milljarðar króna.

hagar
Finnur Árnason, forstjóri Haga, er hefur hlýtt Baugsfeðgum í 12 ár. Smáfuglarnir benda á að í gegnum Finn eru tök feðganna enn á Högum.

Finnur er æðsti maður Haga fyrir utan stjórn félagsins og hefur hlýtt Baugsfeðgum í rúm 12 ár eða allt frá árinu 1998. Þeir sem stjórna hverri verslun fyrir sig fá svo skilaboð frá Finni um það hvernig stefnan skuli vera á heildina litið. Síðustu misseri hafa þessi fyrirmæli ekki farið fram hjá neinum en allir framkvæmdastjórar Haga tóku þá ákvörðun að auglýsa alfarið hjá 365 miðlum sem eru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Svo langt gengu skipanir Finns að 97% auglýsinga Haga samsteypunnar birtust hjá einu og sama fyrirtækinu sem fyrir tilviljun var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Aðspurður sagði Finnur þá að þetta væri eðlilegt enda auglýsti enginn þar sem auglýsingin ekki næði augum lesenda. Sú speki stóðs ekki skoðun þegar í ljós kom að Hagar auglýstu aldrei á vef Morgunblaðsins sem er langsamlega mest lesni vefur landsins.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hversu lengi ný stjórn Haga ætli að leyfa Finni Árnasyni að leika lausum hala innan Haga. Ætlar Arion banki að leyfa Baugsfeðgum að hafa áfram tök á Högum í gegnum Finn Árnason? Verður félagið áfram misnotað til þess að halda fjölmiðlum Jóns Ásgeirs gangandi?

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX