amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:17
 
 
Fuglahvísl birtist 2. september 2010 klukkan 16:27

Gylfi á betur heima hjá laga­deild

Þar mætti skoða ósannindi hans og hugsanleg lögbrot í fræðilegu ljósi

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir eiga stundum erfitt með að skilja stjórnmálamenn. Gylfi Magnússon sagði við fréttamenn í dag þegar hann lét af embætti viðskiptaráðherra að reynsla sín í starfi yrði til þess að bæta sig sem kennara og að nemendur muni njóta góðs af reynslu hans.

Viðskiptaráðuneyti
Gylfi Magnússon sagði þjóð og þingi hvað eftir annað ósatt. Segir að reynslan geri sig að betri kennara.

Ætli Gylfi sé þarna að vísa til þess að hann sagði sjálfviljugur ósatt bæði á Alþingi og við þjóðina í heild sinni - ekki einu sinni heldur margsinnis? Vísar hann til þess að ósannindi hans ollu því að eignir þær sem ríkið keypti af þrotabúum bankanna eru að öllum líkindum stórkostlega ofmetnar og hafa kostað nær gjaldþrota þjóðarbúið gríðarlegar fjárhæðir. Þessum áfanga hafa fáir menn náð og vissulega merkilegt að sitja kennslustundir hjá öðrum eins manni.

Smáfuglarnir velta því þó fyrir sér hvort Gylfi muni ekki gagnast betur í lagadeild þar sem hann yrði notaður sem einhvers konar sýnidæmi. Innan lögfræðinnar er mikið horft á stjórnsýslulög, ábyrgð ráðherra, ábyrgð þeirra sem koma að ríkisfjármálum og síðast en ekki síst tjón sem menn valda með ábyrgðarleysi sínu eða meðvitaðri skaðlegri hegðun.

Þannig taka smáfuglarnir undir með Gylfa - hann mun koma að góðu gagni í Háskólanum.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX