Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að reglulega skýtur Stefán Pálsson, formaður samtaka hernaðarandstæðinga, upp kollinum og gerir athugasemdir við það sem síst er merkilegt. Gott dæmi um þetta eru athugasemdir hans í dag en á Vísir.is segir:
„Þetta er gjörsamlega fráleitt. Þetta er ótrúlega ósmekklegur kveðjuhrekkur af hálfu Kristjáns,“ segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga um ákvörðun Kristjáns l. Möllers, fráfarandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, að veita flugmálastjóra heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited hér á landi.
Um er að ræða fyrirtækið sem aðstoðar við þjálfun flugmanna á herþotum. Samtökin líta svo á að tilgangur fyrirtæksins sé að þjálfa hermenn til þess að verða færari í sínu starfi.
Til allrar lukku hafa stjórnvöld ákveðið að fara að gildandi lögum en ekki áliti Stefán Pálssonar. Að agnúast út í fyrirtæki sem þjálfar menn til flugs á herþotum er í besta falli furðulegt. Því til sannindamerkis má nefna að flugskólinn Keilir notar sömu flugvélar til þjálfunar á flugmönnum og flugher Bandaríkjanna. Það eru því jafngildir „herflugmenn“ sem útskrifast þaðan með full réttindi og úr herflugskólum. ECA fyrirtækið ætlar aðeins að þjálfa þá á ákveðna gerð flugvéla sem er lokaskrefið í þjálfun þeirra.
Samtök hernaðarandstæðinga hafa engar athugasemdir gert við þá staðreynd að íslenskur hugbúnaður sé notaður við flugumferðastjórn á svæðum þar sem mikill hernaður á sér stað. Samtökin hafa ekki gert athugasemd við að íslensk framleiðsla fari í hernað sbr. matvæli, ál, eldsneyti og margvísleg þjónusta. En þegar erlent fyrirtæki vill þjálfa flugmenn þá lemur Stefán í borðið.
Geta smáfuglarnir þá ekki treyst því að Stefán Pálsson leggist gegn öllu flugnámi hérlendis? Mun hann leggjast gegn hugbúnaðargerð ef mögulegt er að nota hann í hernaði? Hvað með þjálfun í skotfimi og bardagalistum? Hvað með Íslendinga sem læra hernaðarfræði erlendis? Eða Íslendinga sem ganga í hersveitir erlendra ríkja? Varla ætla samtökin að taka því þegjandi og hljóðalaust að Íslendingar taki óbeinan þátt í hernaði á ótal mismunandi vegu?
Hræsnin nær reyndar hámarki þegar sú staðreynd blasir við að flokkur Stefáns og flestra „hernaðarandstæðinga“ berst nú hatrammlega fyrir því að Ísland gangi í ESB en þar er nú unnið að því að koma á fót samevrópskum her með öllum þeim sprengikrafti sem því fylgir.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort ekki væri nær að stöðva tilraunir VG til að gera íslendinga þátttakendur í samevrópskum her. Hvað segir Stefán Pálsson um það?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.