amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 18:59
 
 
Fuglahvísl birtist 2. september 2010 klukkan 14:15

Ekkert að marka orð Jóhannesar Jónssonar

Sagði að allar skuldir 1998 yrðu gerðar upp

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir gleyma seint því sem sagt og sérstaklega þegar þá grunar að ekki fylgir hugur orðum. Eitt slíkt dæmi eru ummæli Jóhannesar Jónssonar, sem eitt sinn var kenndur við Bónus, en hann sagði þann 16. nóvember 2009 í viðtali í Kastljósi:

Nýtt skilti gæti sagt: alfarið lánaviðskipti, engar sjálfsskuldaábyrgðir og svo hlaupum við frá öllu saman.

„Við ætlum okkur að ganga til samninga við bankann með það að leiðarljósi, að við ætlumst ekki til að hann afskrifi krónu. Við ætlum að borga allar okkar skuldir á ákveðinn hátt með nýju fjármagni. Það tekur náttúrulegan einhvern tíma að borga það niður en við teljum okkur hafa fullan grundvöll fyrir því að ná því fram.“

Þarna ræddi Jóhannes um félagið 1998 ehf sem er móðurfélag Haga samsteypunnar. Síðan þá hefur það gerst að Jóhannes og fjölskylda eru farin frá Högum eftir að Höskuldur bankatjóri Arion tók af skarið og skar á óskiljanleg yfirráð fjölskyldunnar yfir Högum eftir að Baugsfeðgar settu 1998 ehf á hausinn með rúmlega 50 milljarða króna þroti.

Á því ári sem liðið er frá ummælum Jóhannesar hafa engar skuldir verið greiddar niður og engar áætlanir virðast vera um slíkt. Jóhannes í Bónus ætlar því að láta það sannast að hann fari frá einu stærsta gjaldþroti hérlendis og ekki nóg með það heldur þáði hann tæpar 114 milljónir úr hendi stærsta kröfuhafa þrotsins, Arion banka, fyrir það eitt að hætta.

Sjá má á þessu að mikið hefur Jóhannes Jónsson breyst. Sú var tíðin að hann boðaði ekkert bruðl og í Bónus búðum var skilti þar sem tekið var fram að hamstur væri bannað. Nú skilur Jóhannes eftir sig eina stærstu skuldasúpu samtímans eftir taumlaust bruðl og hamstrar peninga Arion banka í formi starfslokasamnings.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX