amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:16
 
 
Fuglahvísl birtist 1. september 2010 klukkan 15:27

Óuppdreginn þingmaður

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir hafa lengi furðað sig á því hversu litlar kröfur almenningur gerir til Samfylkingarinnar og hvernig sá flokkur kemst upp með hvert hneykslið á fætur öðru án þess að það valdi viðbrögðum. Skýrist það vafalaust af því að flokkurinn sjálfur gerir litlar sem engar kröfur til sín eins og sjá má á ráðherraliði flokksins.

DV bendir á þá ótrúlegu staðreynd að Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hafi viðhaft munnsöfnuð við einhvern sem viðstaddur var útvarpsviðtal sem RÚV tók við þingmanninn. Þeir sem hafa áhuga á að hlusta á málefnalega þingmanninn geta spilað neðangreint myndband fram um eina og hálfa mínútu eða svo.

Þeir sem ekki hafa tíma til að spila myndbandið geta látið sér frétt DV duga en þar segir:

Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði við einhvern að skila til frænda síns að hann ætti að hoppa upp í rassgatið á sér. Þessi orð lét Þórunn falla eftir útvarpsviðtal við fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Ekki hafði verið slökkt á útsendingunni þegar Þórunn snéri sér að einhverjum öðrum en fréttamanni og sagði orðrétt: „Segðu frænda þínum að hoppa upp í ***gatið á sér.“

Smáfuglarnir sjá á þessu að fulltrúar Samfylkingarinnar segja ekki bara ósatt, svindla og svíkja í fyrirtækjarekstri, fá sérmeðferð hjá lánastofnunum, ráða vini sína í opinber embætti og að koma útrásarvíkingum í Íbúðarlánasjóð heldur segja þeir nú gestum og gangandi að „hoppa upp í ***gatið á sér“.

Smáfuglarnir telja reyndar að Þórunn Sveinbjarnardóttir dragi viðhorf Samfylkingarinnar til þjóðfélagsins mjög vel saman með orðum sínum.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX