Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Andrés Jónsson, almannatengill og samviska Samfylkingarinnar í netheimum, fjallar um hin ótrúlegu mál Jóhannesar Jónssonar í nýlegri færslu á vefsíðu sinni. Umfjöllun Andrésar vekur athygli fyrir þær sakir að Samfylkingin hélt ávalt hlífðarskyldi yfir Baugi. Andrés skrifar:
Kemur í ljós það sem mann grunaði. Baugsfjölskyldan lét Haga reka lífsstílinn sinn.
„Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði; bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða“
Þá skilur maður loksins afhverju rekstur Haga var rekinn í kringum núllið síðustu árin, þrátt fyrir að þeir væru með íslenska neytendur í bóndabeygju með hartnær 50% markaðshlutdeild á matvörumarkaði. Hagnaðurinn hefur verið tekinn út áður en formleg reikningsskil fyrirtækisins fóru fram.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvers vegna samviskan hafði ekki orð á því fyrr að hana grunaði að svona væri í pottinn búið hjá Baugsfjölskyldunni og Högum. Samfylkingin hefur árum saman haldið uppi sérstökum vörnum fyrir Baug og eftir bankahrun hafa þær varnir verið sérstaklega áberandi. Þá heyrðist ekkert í samviskunni.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.