Bankinn þarf að kanna hvaðan peningarnir koma - einfaldar reglur
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að nú heldur Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka því fram að hann viti ekki hvaða peningarnir komi sem Jóhannes Jónsson ætli að nota til þess að kaupa tískuverslanir út úr Högum en bankinn gerði einkasamkomulag við Jóhannes þess efnis af ástæðum sem smáfuglunum eru ekki kunnar. Höskuldur segir við Morgunblaðið:
Ef hann greiðir ekki með peningum þá fær hann ekki hlutabréfin. Þetta eru engin lán frá bankanum. Hann kemur með peningana einhverstaðar annars staðar frá, ég veit ekki hvaðan.
Þessi skýring Höskuldar fær ekki staðist. Íslenskir bankar starfa eftir vel skilgreindum lögum m.a. um peningaþvætti og gera því kröfu um að vita hvaðan peningar sem notaðir eru í viðskiptum séu komnir. Þannig getur enginn opnað bankareikning án þess að fylla út langa umsókn með nákvæmri lýsingu á því hver uppruni peninganna séu og hvaðan þeir komi.
Arion banki þarf að skoða viðskiptamenn sína eftir gildandi reglum og því af og frá að halda því fram að bankinn viti ekki hvaðan peningar fyrir tískuverslunum koma. Hið rétta er að Höskuldur vill ekki upplýsa um það af öðrum ástæðum en þeim að hann viti ekki betur.
Smáfuglarnir hvetja Höskuld til að koma hreint fram. Nógu slæmt er að bankinn hafi gert sérsamning við Jóhannes Jónsson sem tilheyrir þeim hópi sem skilið hefur eftir sig ljótustu gjaldþrotaslóð í Íslandssögunni. Óþarfi er fyrir Höskuld að bæta gráu ofan á svart og þykjast ekki vita hvaðan fjármögnun komi á kaupin.
Það væru þá fyrstu milljarða viðskiptin þar sem seljandi vissi ekkert um fjármögnun kaupanda.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.