amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:23
 
 
Fuglahvísl birtist 31. ágúst 2010 klukkan 14:50

Ríkisendurskoðun áttar sig á Keili

Nýttu ríkisstyrki í annað en um var samið

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir hafa lengi flögrað umhverfis gömlu herstöðina á Miðnesheiði þar sem Keilir rekur nú starfsemi sína. Keilir er einkahlutafélag sem rekur skóla sem kennir hin ýmsu fög. Mest hefur þó farið fyrir flugkennslu skólans og hefur félagið leigt fjórar mjög dýrar ríkulega búnar flugvélar.

Fram kemur hjá Ríkisendurskoðun að félagið hefur fengið gríðarlega styrki úr opinberum sjóðum og nú er svo komið að Ríkisendurskoðun setur alvarleg spurningarmerki við rekstur skólans og bendir á að augljóst sé að peningar hins opinbera hafi farið í aðra hluti en um var samið. Ríkisendurskoðun segir:

londogsaga.is
Hjálmar Árnason er framkvæmdastjóri Keilis. Í ljós kom að ríkisstyrkir fóru í annað en um var samið.

Á árunum 2007–10 fékk Keilir ehf. samtals 685,7 m.kr. úr ríkissjóði. Í skýrslunni kemur fram að um helmingur fjárins átti að renna til svokallaðrar frumgreinakennslu sem hefur að markmiði að búa nemendur undir háskólanám. Sérstakir samningar voru gerðir um þau framlög milli menntamálaráðueytisins (nú mennta- og menningarmálaráðuneyti), Háskóla Íslands og Keilis. Í skýrslunni er gagnrýnt að Keilir hafi nýtt hluta þeirra til annarrar starfsemi en frumgreinakennslu. Ríkisendurskoðun telur brýnt að fjárveitingar ríkisins til skólans renni til þeirra verkefna sem um hefur verið samið.

Smáfuglarnir sjá á þessu að hér er komin fram skýringin á því hvernig Keilir hefur getað boðið t.d. flugnám á kjörum sem eru langt undir kostnaðarverði. Aðrir flugskólar hafa löngum gagnrýnt skipulag Keilis harðlega og ekki áttað sig á því hvernig rekstur þar á bæ geti gengið upp en flugkennsla hjá öðrum en Keili er hérlendis alfarið í höndum einkaaðila.

Spennandi verður að sjá hvernig hið opinbera tekur á því að Keilir hafi notað ríkisstyrki sem skólanum voru veittir í önnur mál en ríkið taldi sig vera að styrkja. Voru gerðir leigusamningar á flugvélum fyrir peningana? Fóru þeir í að niðurgreiða flugnám?

Þetta eru spurningar sem Hjálmar Árnason hlýtur að svara á næstu dögum. Þá velta smáfuglarnir einnig fyrir sér hvernig þeim líði sem nú eru að hefja nám sitt og hafa greitt fleiri milljónir fram í tímann fyrir nám sitt hjá Keili þegar Ríkisendurskoðun segir fullum hálsi að hún efist um framtíð skólans:

VF
Runólfur Ágústson (t.h.) og Hjálmar Árnason (t.v) en þeir hafa báðir verið lykilmenn hjá Keili. Hjálmar er þar nú framkvæmdastjóri.

Fram kemur að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 m.kr. og skuldir 463 m.kr. Að mati Ríkisendurskoðunar er óvíst hvort fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir rekstri skólans. Bent er á að ríkisvaldinu sé ekki að lögum skylt að styðja einkaskóla á borð við Keili. Þeim beri sjálfum að tryggja eigið rekstraröryggi.

Smáfuglarnir trúa því ekki að Keilir muni njóta áframhaldandi styrkja ef ásakanir Ríkisendurskoðunar eru á rökum reistar. Slíkt væri mikið órétti gagnvart öðrum sem stunda án ríkisstyrkja sömu atvinnustarfsemi og Keilir.

Hitt er svo að staða Keilis kemur smáfuglunum ekki á óvart í ljósi þess að þar hafa haldið á spilunum ekki ómerkari menn en Runólfur Ágústsson, sem hvað lengst íslendinga gengdi stöðu umboðsmanns skuldara, og Hjálmar Árnason gæðingur Framsóknarflokksins.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX