amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:16
 
 
Fuglahvísl birtist 31. ágúst 2010 klukkan 12:52

Hver fjármagnar kaup Jóhannesar?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sjá í fréttum að Jóhannes Jónsson er sagður ætla að kaupa nokkur fyrirtæki út úr Högum. Óskiljanlegt er að Arion banki samþykki það og svipti aðra fjárfesta aðgangi að þessum félögum. Bankinn verðlaunar þannig þá aðila sem settu móðurfélag Haga á hausinn með því að gera við þá sérsamninga sem almennir fjárfestar hafa ekki aðgang að. Í tilkynningu frá Arion banka segir:

Jóhannes Jónsson ætlar ekki að greiða neitt upp í þrot 1998 ehf sem Arion banki leysti til sín. Þess í stað hyggur hann á kaup þriggja fyrirtækja út úr högum á sérkjörum.

Í samkomulaginu felst að Jóhannes kaupir allan eignarhlut Haga i færeyska félaginu SMS sem er 50%. SMS rekur matvöruverslanir þar í landi en þær eru ótengdar verslunarrekstri félagsins á Íslandi og eina eign Haga utan Íslands. Þá kaupir Jóhannes sérvörubúðirnar Top Shop, Zara og All Saints, enda er það niðurstaða Arion banka að ekki sé æskilegt að selja þær með samstæðunni vegna tengsla milli eigenda viðkomandi umboða og fjölskyldu Jóhannesar.

Hver fjármagnar kaup Jóhannesar á þessum fyrirtækjum? Er það svo að Jóhannes sem var með svo skuldsett sumarhús að það nam margföldu markaðsverði þess sé nú allt í einu kaupandi að þremur stórum fataverslunum? Og ef ekki hver fjármagnar kaupin?

Um fjármögnun kaupanna verður Arion banki að upplýsa. Getur verið að bankinn sjálfur fjármagni kaup Jóhannesar á fyrirtækjunum eftir allt það sem á undan er gengið? Ef Jóhannes kaupir þau fyrir eigin reikning þá verður hann að svara því hvers vegna hann greiði ekki frekar upp gjaldþrot 1998 sem eftir þá feðga liggur eins og brunarúst.

Smáfuglarnir höfðu meiri trú á nýjum bankastjóra Arion banka en svo að hann færði Jóhannesi Jónssyni öflug fyrirtæki á sérkjörum. Það hefur þá ekkert breyst í Arion banka eftir allt saman.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX