amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:06
 
 
Fuglahvísl birtist 31. ágúst 2010 klukkan 10:56

Arion leitar að stöðum fyrir Finn Sveinbjörnsson

Verður settur í stjórnir fyrirtækja fyrir hönd Arion banka

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir sjá í viðskiptalífinu að Arion banki hefur hafið leit að störfum fyrir Finn Sveinbjörnsson, fyrrum bankastjóra, sem nú hefur kostað bankann yfir hundrað milljónir vegna aðkomu Jóhannesar Jónssonar að Högum en sú aðkoma var skipulögð af Finni þegar hann var bankastjóri. Bankinn vill nú verðlauna þær ákvarðanir Finns.

Finnur Sveinbjörnsson, fyrrum bankastjóri Arion banka, gerði samninga við Jóhannes Jónsson sem nú kosta bankann vel yfir 90 milljónir króna.

Heimildir smáfuglanna herma að ekki sé langt í að sagt verði frá því að Finnur setjist í stjórnir ákveðinna félaga fyrir hönd Arion banka. Viðleitni bankans til að verðlauna þá sem ollið hafa bankanum tjóni heldur þannig áfram og er í fullu samhengi við starfslok Jóhannesar.

Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvort Finni verði fengið það hlutverk að gæta hagsmuna Baugsfjölskyldunnar í einhverjum af fyrirtækjum Arion banka líkt og gert var með Sigurjón Pálsson sem settur var í kjörstöðu til að dæla auglýsingapeningum til mágs síns Ara Edwald forstjóra 365 miðla.

Finnur reyndist Baugsfjölskyldunni vel eftirmálum í bankahrunsins og gerði við fjölskylduna samninga sem nú eru að kosta Arion banka háar fjárhæðir. Finnur mætti líka í Kastljós og gerði tilraun til að útskýra hvers vegna bankinn hefði gengið þvert á eigin starfsreglur þegar Baugsfeðgum var gefinn forkaupsréttur að Högum og Jóhannes gerður að stjórnarformanni.

Hver veit nema Finnur mæti aftur í Kastljós með nýtt baráttumál fyrir Baugsfeðga.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX