amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:23
 
 
Fuglahvísl birtist 31. ágúst 2010 klukkan 10:49

Tími hinna stóru starfslokasamninga kominn á ný

Jóhannes leystur út með hundruðum milljóna

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir hafa sagt frá ævintýralegum ákvæðum í starfslokum Jóhannesar Jónssonar hjá Arion banka en hann var formaður stjórnar Haga sem bankinn átti í gegnum móðurfélag þess, 1998 ehf. Það sem vakti sérstaka athygli voru upphæðir í samningi Jóhannesar og ótrúleg hlunnindi sem starfinu fylgdu.

Facebook - Sigurjón Pálsson
Sigurjón Pálsson, fulltrúi Arion í stjórn 1998, sá til þess að Jóhannes Jónsson riði feitum hesti starfi sínu hjá Högum.

Arion banki segir sjálfur að Jóhannesi hafi „haft afnot“ af íbúð, sumarhúsi og bíl. Án þess að það sé tekið fram má ætla að það hafi verið svo frá því að bankinn tók 1998 yfir fyrir rúmu ári. Á þessum stutta tíma sat Jóhannes einnig sem stjórnarformaður Haga fyrir hönd bankans og naut þar slíkra kjara að starfslokin hljóðuðu upp á 90 milljónir í peningum til viðbótar við áframhaldandi laun í tíma sem ekki er tilgreindur í tilkynningu bankans.

Smáfuglarnir sjá á þessu að tími hinna stóru starfslokasamninga er síður en svo liðinn hjá Baugsfjölskyldunni. Sigurjón Pálsson fulltrúi Arion banka í 1998 ehf, móðurfélagi Haga, stendur vaktina fyrir gamla vini og tryggir Jóhannesi feitan hest til heimferðar frá starfi sínu hjá Högum. Ljóst er því að Sigurjón og aðrir hjá Arion banka telja að almenningur geti borgað brúsann þegar allt er komið á versta veg líkt og í þroti 1998 ehf. en þeir sem að þrotinu stóðu er leystir út af Arion banka með 90 milljónum í peningum, sumarhúsi, íbúð og bíl til viðbótar við launagreiðslur.

Þótt ótrúlegt hljómi þá bætist við að í þann stutta tíma sem Jóhannes var stjórnarformaður Haga var félagið notað til þess að dæla peningum í fjölmiðlaveldi Baugsfjölskyldunnar með slíku offorsi að mælingar sýndu að 97% allra auglýsinga Haga fóru til 365 miðla.

Það er eflaust tilviljun ein að forstjóri 365 miðla, Ari Edwald, er mágur Sigurjóns Pálssonar.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX