Jóhannes möglega hæst launaði stjórnarformaður landsins
Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir tóku eftir athyglisverðri setningu í tilkynningu frá Arion banka sem loks hefur sett Jóhannes Jónsson út úr stjórn Haga eftir að Baugsfeðgar keyrðu móðurfélagið (1998 ehf) í gjaldþrot svo að Arion leysti það til sín fyrir rúmu ári. Í tilkynningu frá bankanum segir:
Auk þess að falla frá forkaupsrétti eru í samkomulaginu ströng skilyrði um að Jóhannes og aðilar honum nátengdir efni ekki til samkeppni við Haga næstu 18 mánuði eftir undirritun samningsins. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði; bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða.
Getur það verið að Jóhannes Jónsson hafi á því rúma ári sem liði er frá yfirtöku bankans verið hæst launaði stjórnarformaður á Íslandi? Ætli það hafi verið verðlaunin fyrir að setja 1998 á hausinn? Smáfuglarnir vita ekki um neinn stjórnarformann hérlendis sem fær til viðbótar við laun sín afnot af sumarhúsi, íbúð og bíl.
Ljóst er að Sigurjón Pálsson, fulltrúi Arion banka í stjórn 1998, hefur gert vel við Jóhannes Jónsson og talið rétt að verðlauna aðkomu hans sérstaklega. Hegðun Arion banka sýnir einnig að það varð í raun ekkert hrun hjá útrásarvíkingunum í kringum Baug því kjör Jóhannesar hjá Högum voru betri en margra í góðærinu.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvernig Arion banka dettur í hug að gera starfslokasamning við stjórnarformann félags? Það er ný uppfinning sem ekki einu sinni tíðkaðist í mesta hamagangi útrásarinnar. Stjórnarformaður er ekki launaður starfsmaður félagsins í hefðbundnum skilningi heldur fulltrúi eigenda sem hefur yfirumsjón með rekstri félagsins. Slíkt felst í nokkrum fundum í mánuði ef álagið er mikið.
Hitt er að það borgar sig greinilega að setja risavaxin fyrirtæki á hausinn ef Arion banki er stærsti kröfuhafi. Fyrir slík afrek fást afnot af sumarhúsi, íbúð og bíl ásamt góðum launum. Við svo bætist starfslokasamningur og 90 milljóna eingreiðsla.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.