Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Viðskiptablaðið bendir á þá staðreynd að í Bretlandi sé um 25% nektardansara með háskólapróf og séu í starfinu aðallega vegna góðra tekna. Í frétt Viðskiptablaðsins segir:
Ný rannsókn á vegum Háskólans í Leeds í Bretlandi sýnir stór hluti þeirra kvenna sem valið hefur að starfa sem nektardansmeyjar á Bretlandi gera það peninganna vegna. Þær geti með því starfi aflað meiri fjár en þær annars gerðu í „hefðbundnum“ störfum.
Frá þessu er greint á vef BBC en í sömu rannsókn kemur í ljós að fjórðungur nektardansmeyja á Bretlandi hefur lokið við háskólanámi.
Dr. Belinda Brooks-Gordon, rannsóknaraðili hjá háskólanum í Leeds, segir í samtali við BBC að rannsóknin hafi verið vel unnin. Hún segir að laun dansmeyjanna hafi skipt meginmáli þegar kæmi að því að velja þessa atvinnugrein.
Hvað segja öfgafemínistar við þessum staðreyndum? Þeir hafa alltaf haldið því fram að allir sem svipti sig klæðum við taktfasta tónlist séu hér undantekningalaust þrælar í haldi erlendra mansalshringa og geti ekki í nokkrum tilvikum verið sjálfráða einstaklingar að taka upplýsta ákvörðun. Byggir sú afstaða á umburðarlyndisstefnu femínista - ef ég vil ekki fækka fötum þá vill það enginn.
Smáfuglarnir velta einnig fyrir sér hvort ekki verði gefinn út viðauki við helgirit öfgafemínista sem kostað var af menntamálráðuneytinu og ber heitið Kynungabók og smáfuglarnir sögðu frá á dögunum. Í viðaukanum mætti segja frá Leeds rannsókninni.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.