amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:18
 
 
Fuglahvísl birtist 30. ágúst 2010 klukkan 15:52

Landi framleiddur sem aldrei fyrr

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Ófáar fréttir hafa verið síðustu daga af því að lögregla hafi „upprætt landabrugg“ hér og þar um landið. Svo margar eru fréttirnar orðnar að ekki er lengur hægt að telja þær á fingrum annarrar handar og er um allt land, til dæmis í Vogum, á Akureyri, á Selfossi og í Hafnafirði.

Sjónvarpið
Álfheiður Ingadóttir telur verðstefnu sína í áfengismálum góða. Landaframleiðsla og ólögleg viðskipti með áfengi hafa aldrei verið meiri.

Þessi tímasóun lögreglumanna við að elta uppi, rannsaka og eyða löglegum bruggtækjum kemur niður á löggæslu á sviðum þar sem raunveruleg afbrot eru framin. Ef tíu lögreglumenn eru að bera leiðslur og tunnur út úr iðnaðarhúsnæði þá eru tíu færri í því að gæta öryggis á mannfögnuðum eða í íbúðahverfum. Öryggi allra verður minna og enginn er betur settur því tíu bruggverksmiðjur spruttu upp rétt á meðan þessi eina var tekin í sundur.

Bruggstarfsemin er bein afleiðing af áfengisstefnu ríkisstjórnarinnar sem er svipuð þeirri stefnu sem viðhöfð var á haftaárunum hinum fyrri. Nú er nálgunin sú að hækka verð á áfengi sem orðið er svo dýrt að margir hafa ekki efni á því og þar tekur svarti markaðurinn við. Landasalar eru farnir að sjást aftur á skólalóðum en þeir voru að mati margra nöturlegt einkenni fortíðar.

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til þess að lemja í borðið og krefjast þess að skattar og tollar á áfengi verði lækkaðir svo uppræta megi raunverulega landasölu og ólöglega bruggstarfsemi.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX