amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:05
 
 
Fuglahvísl birtist 30. ágúst 2010 klukkan 15:40

Ómerkilegur Egill Helgason

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Egill Helgason

Egill Helgason gerir á illræmdri bloggsíðu sinni árás á Kjartan Gunnarsson fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins en Samband ungra sjálfstæðismanna veitti á dögunum InDefence svonefnd Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar fyrir að standa vörð um Ísland í Icesave málinu. Um verðlaunin segir Egill:

Veit einhver hvort InDefense eru búin að taka við Kjartans Gunnarssonar verðlaununum frá SUS – eða hvort samtökin ætla að þiggja verðlaun með þessu nafni?

Agli er svo svarað af InDefence í athugasemdum á síðunni þar sem segir:

Sæll Egill

Við tókum vissulega við verðlaununum og þökkum þá viðurkenningu sem í þeim felst, Það væri algerlega andstætt þeim samstarfsanda og hugsjón InDefence hópurinn byggir á að fara í manngreinarálit eftir stjórnmálaskoðunum. Við myndum jafn fúslega taka við verðlaunum frá Ungum jafnaðarmönnum ef því væri að skipta.

Það má vel vera að menn sjái ákveðna kaldhæðni í því að InDefence skuli veitt verðlaun kennd við stjórnarmann í Landsbankanum. Vilji menn velta sér upp úr því frekar en að ræða málefnið verður svo að vera.

Það má kannski spyrja í framhaldinu Egill, úr því þú ræðir nú reglulega um Icesave málið og hefur skoðanir á ýmsu varðandi málflutning InDefence: Hvers vegna hefur þú aldrei boðið InDefence hópnum í silfrið til að ræða málin? Það er kjörið tækifæri til að útskýra allt sem þú spyrð um og kommentar á hér á blogginu en hefur aldrei haft fyrir því að ræða við okkur beint um.

InDefence hittir þar naglann á höfuðið. Egill hefur aldrei boðið hópnum í þátt sinn sem kostaður er af skattgreiðendum og enn síður hefur hann reynt að gera grein fyrir sjónarmiðum þeirra sem eru á móti Icesave skuldum sem Steingrímur J. og Svavar Gestsson hafa þráast við að binda um háls íslenskra skattgreiðenda.

Egill skrifar einnig á síðu sína:

Kjartan var einn aðalmaðurinn í stjórn bankans sem steypti Íslandi í þessar hroðalegu skuldir. Að verðlaun sem veitt eru samtökum sem berjast gegn þessu skuldum skuli kennd við hann er vægast sagt súrrealískt.

Hvaða skoðun er það að Kjartan Gunnarsson beri ábyrgð á því að Icesave skuldir falli á íslenska skattgreiðendur? Kjartan hefur sagt að bankinn hafi aldrei talið svo vera og undir það hefur Seðlabankai Evrópu tekið, sjálft ESB og síðast en ekki síst fjármálaráðherra Hollands.

Þeir einu sem telja að erlendar Icesave skuldir Landsbankans eigi að falla á Íslendinga eru Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson að ógleymdum Agli Helgasyni sem reynir ómerkilegt bragð í hatri sínu á Kjartani Gunnarssyni - að segja annað en það sem satt er.

Væri ekki rétt að losa hinn hlutdræga Egil úr starfi sínu og fá InDefence útsendingartímann? Sá hópur er ávalt málefnalegur og heiðarlegur í sínum málflutningi ólíkt umræðustjóra hins opinbera.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX