Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Sú nýjung er nú viðhöfð á Fréttablaðinu að ritstjóri fari sjálfur og taki viðtöl í blað sitt. Það kom því smáfuglunum skemmtilega á óvart að fyrsta slíka viðtalið í tíð Ólafs hafi verið viðtal við Sigurð Einarsson þar sem hann þvær af sér allar sakir og gerir harða sókn að íslenskum rannsóknaraðilum. Ef nöfnin í viðtalinu hefðu verið önnur hefðu smáfuglarnir talið að um endurbirtingu á viðtölum og fréttum Baugsmálsins hefði verið að ræða.
Þeir eru ekki margir sem þekkja ekki Stephensen dugnaðinn sem gengur út á að skrifa hvað mest má um að Ísland eigi að afsala sér sjálfstæði og ganga inn í ESB, gæta þess vandlega að engar fréttir birtist um Jón Ásgeir og Ingibjörgu Pálmadóttur, og síðast en ekki síst taka viðtöl við útrásarvíkinga. Smáfuglarnir þakka fyrir að Ólafur fór sjálfur og tók viðtalið því ella hefði blaðmaðurinn sem fékk að fljóta með getað spurt Sigurð erfiðra spurninga eins og ungum blaðamönnum er tamt.
Hvar voru til dæmis spurningar um þau atriði sem fram koma í úrskurði Hæstaréttar í tengslum við gæsluvarðahaldsúrskurð Hreiðars Más? Fjölmiðlar hafa gert því skil og hefði ritstjórinn því leikandi getað spurt Sigurð út í þau atriði.
Smáfuglarnir sjá að vettlingatök Fréttablaðsins hafa ekkert breyst og blaðið er nú sem fyrr vinsæll vettvangur þeirra sem hvað mestu fé tapa fyrir hluthöfum sínum og telja svo að réttarríkið sé allt spillt og ónýtt um leið og það beinir sjónum sínum að þeim sjálfum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.