Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir lásu viðtal við Sigurð Einarsson í Fréttablaðinu. Í viðtalinu endurspeglast sú skoðun Sigurðar að hann hafi fátt gert rangt og sé saklaus af þeim sökum sem á hann eru bornar. Um sannleiksgildi þess eða ásakana á hendur Sigurði vita smáfuglarnir lítið og bíða niðurstöðu dómsstóla. En Sigurður gleymir þó einu.
Hluthafar Kaupþings voru þegar mest lét um 40.000 talsins og jafnvel tvö- eða þrefalt fleiri ef félagsmenn þeirra lífeyrissjóða sem fjárfestu í bankanum teljast með. Það má því segja að nær öll þjóðin hafi tapað á því viðskiptamódeli sem Sigurður setti upp ásamt samstarfsmönnum sínum í bankanum. Við má svo bæta að Kaupþing fékk risavaxið neyðarlán frá Seðlabanka Íslands rétt fyrr hrun bankans. Þar var sannanlega fé skattgreiðenda á ferð.
Sigurður segist ekki þurfa að biðja þjóðina afsökunar „enda hafi hann ekki haft umboð sitt frá henni“. Hvernig fær það staðist þegar meirihluti þjóðarinnar er hluthafi í bankanum beint eða óbeint? Hvernig fær það staðist þegar Kaupþing sækir um og fær risavaxið lán frá Seðlabanka Íslands og hrynur engu að síður?
Ef Sigurður skuldar ekki í besta falli afsökunarbeiðni - hvað skuldar hann þá?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.