Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir eru undrandi á því, að birtar séu sem venjulegar fréttir, þegar vitnað er í ruglið eftir Fidel Castró, einræðisherra á Kúbu. Hann tók að láta í sér heyra, eftir að pólitískum föngum var sleppt. Þá flutti hann ræðu um, að heimurinn stæði á barmi kjarnorkustyrjaldar vegna stefnu Bandaríkjastjórnar.
Þessum yfirlýsingum hefur verið líkt við tilraun af hálfu Castrós til að draga athygli heimsbyggðarinnar að öðru en vandaræðum Kúbustjórnar, sem stendur sífellt verr á sinni heimaslóð.
28. ágúst lesa smáfuglarnir á mbl.is, að á fréttasíðu breska blaðsins The Guardian sé sagt, að Castro hafi „ fullyrt að Osama bin Laden sé á launum hjá leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA og að George Bush forseti hafi tilkallað al-Qaida leiðtogann á sinn fund í hvert skipti sem hann taldi þurfa bæta í hræðslu fólks.“ Þetta hefði Castro lesið á WikiLeaks. Síðan birtist þessi klúðurslegi texti á mbl.is:
„Sjálfsagt hefur Fidel Castro fleiri ástæður en flestir til að trúa samsæriskenningum sem fela í sér (svo!) myrk öfl innan hvíta hússins í Washington í Bandaríkjunum en hann hélt því eitt sinn fram að CIA hafi reynt að drepa hann með sprengjubúnum (svo!) vindli.
Castro sagði litháenskum (svo!) rithöfundi að Bin Laden ynni fyrir hvíta húsið. Rithöfundurinn var í heimsókn í Kúbu og er þekktur fyrir athyglisverðar samsæriskenningar sínar um ráðabrugganir (svo!) valdamikla (svo!) manna um heimsyfirráð.
Castro lét þessi ummæli falla á fundi með Daniel Estulin, höfundi þriggja bóka um leynda klúbbinn (svo!) Bilderber (svo!) sem átti að innihalda (svo!) menn eins og Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna og leiðtogar (svo!)og viðskiptamenn í Evrópu.
Estulin og Castro voru ósammála um eitt, þrátt fyrir að vera báðir hlynntir samsæriskenningum og það var að Estulin hefur lengi sagt að mannkynið þurfi að finna aðra plánetu til að búa á, vegna offjölgunar.
Castro var ekki á sama máli og sagði að maðurinn hafi aðeins náð til tunglsins, sem er óhentugt til lifnaðar (svo!). Því væri betra að bæta stöðuna á jörðinni. „Mannkynið á að hugsa um sig sjálft ef það vill lifa hér í þúsundir ára til viðbótar,“ sagði Castro.“
Smáfuglarnir velta fyrir sér, hvaða samsæri búi að baki þessu rugli öllu saman. Er hinn lélegi texti til heiðurs rithöfundinum frá Litháen? Eða til að árétta ruglið í Castró? Kannski er þetta einhvers konar dulmál til að árétta, að um samsæri sé að ræða?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.