Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Geir Ágústsson, verkfræðingur, er ötull talsmaður einstaklingsins og hefur haldið úti vefsíðu um árabil auk þess að birta greinar í blöðum. Geir er óvæginn í gagnrýni sinni á stjórnlyndi og afskiptasemi hins opinbera og er þannig einn fárra sem þora að mæla gegn rétttrúnaði hvers tíma.
Geir birtir grein í Morgunblaðinu í morgun og leyfa smáfuglarnir sér að vitna til hennar:
Útsvarið í Reykjavík verður bráðum skrúfað í botn og þar á bæ hafa menn tekið stórt lán til að dæla fé í framkvæmdir og viðhald. Ríkisstjórnin hefur tekið mörg risastór lán og gjalddögum þeirra slegið á frest eins og frekast er unnt. Háreistar vatnsrennibrautir prýða ótal lítil sveitarfélög sem einskonar tákn fyrir hallarekstur þeirra. Gjaldþrota einstaklingar eru skattpíndir til hins ýtrasta til að halda alltof mörgum opinberum starfsmönnum við skrifstofuborð sín. Atvinnulausu fólki er boðið upp á flest nema atvinnutækifæri, t.d. námskeið, nám, sjálfboðavinnu, tómstundir og sundlaugakort. Á meðan blæðir hagkerfinu út, hratt og örugglega.
Skynsamt fólk veit að til að rétta af fjárhaginn þarf tvennt að gerast: Útgjöld þurfa að vera lægri en tekjur og skuldir þurfa að minnka. Íslenskir stjórnmálamenn halda hins vegar að til að rétta af fjárhaginn þurfi að taka fleiri lán og kreista seinasta blóðdropann út úr þurrum æðum skattgreiðenda. Hækkun skulda og skatta er eina ráðið sem þeir hlusta á. Hvenær ætlar almenningur að setja spurningarmerki við það?
Oft þarf ekki langan texta til að skilja kjarnann frá hisminu. Íslensk stjórnvöld gera allt annað en það sem eðlilegt er þegar illa árar. Þau auka lántökur og halda drykkjunni áfram eins og komast mætti að orði.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvers vegna hvergi sé gerð athugasemd við þær gengdarlausu lántökur sem hið opinbera hefur staðið í að undanförnu? Halda stjórnmálamenn að það dugi til eilífðar að setja lán á herðar þess helmings skattgreiðenda sem ekki eru opinberir starfsmenn? Eins og Geir bendir á kemur að því að síðasti blóðdropinn renni sína leið.
Hvað verður þá gert?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.