Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir sjá að Árni Páll Árnason, sá sólbrúni, er enn og aftur kominn í klandur við að reyna að gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Íbúðarlánasjóðs. Svo langt hefur hann gengið að hann tekur fram fyrir lögskipað hlutverk stjórnar sjóðsins en hún hefur það með höndum að skipa forstjóra. Nú hefur Árni skipað valnefnd sem á að „velja næsta forstjóra“ sem mun vera nýstárleg umorðun á því að ráða Yngva Örn Kristinsson.

Fyrir nokkru voru fjórir umsækjendur teknir í viðtal og þar á meðal Yngvi Örn Kristinsson, fyrrum yfirmaður verðbréfasviðs Landsbankans. Heimildir smáfuglanna herma að stjórnin hafi ekki haft kjark til þess að skipa Yngva að undirlagi ráðherrans og því hafi enginn verið skipaður. Ráðherra bregður þá á það ráð að skipa valnefnd og færa hitann af málinu þangað.
Skipun ráðherrans nú á „valnefnd“ til að velja forstjóra var kornið sem fyllti mælinn hjá Ástu H. Bragadóttur sem var einn umsækjenda og hafði verið boðuð í viðtal. Taldi Ásta að með framferði ráðherrans og skipun valnefndar hefði sér verið sýnd fyllsta óvirðing og útséð með að hún yrði valin í starfið.
Smáfuglarnir velta fyrir sér hversu lengi Árni Páll Árnason komist upp með að traðka á reglum stjórnsýslunnar og hafa áhrif á eðlilegt ferli mannaráðninga hjá hinu opinbera? Hvar eru allir þeir sem hvert tækifæri nota til að tjá sig um stjórnsýslumál? Hvar er dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur? Hvar er dr. Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur?
Og hvar eru allir Herðir Torfasynirnir?
345 dagar eftir í starfi hjá Páli Magnússyni
Smáfuglarnir velta fyrir sér hvað Páll Magnússon, hinn máttlausi útvarpsstjóri, muni taka sér fyrir hendur þegar honum verður sagt upp störfum eftir næstu kosningar. Allt bendir til þess Ísland losni undan oki vinstristjórnar eftir næstu kosningar og þá verði tekið til hendinni við að skikka opinberar stofnanir til þess að fylgja settum lögum.
Er fólkið í ESB auglýsingunum ekki misnotað?
Smáfuglarnir hafa undanfarna daga séð hvern vinstrimanninn á fætur öðrum kalla misnotkun að þeim sem komið hafa fram í auglýsingum fyrirtækja og sveitarfélaga um land allt gegn aðför vinstristjórnarinnar að sjávarútveg. Segja þeir jafnan að verið sé að misnota fólkið sem fram kemur og að þetta séu auglýsingar af verstu sort.
Enginn hlekkjaði sig við tæki á Úlfarsfelli
Hræsni umhverfisverndarsinna er oft með ólíkindum. Þannig sagði enginn neitt þegar stórvirkar vinnuvélar lögðu af stað upp mosavaxið Úlfarsfellið til að grafa þar skurð, tæta upp mosa og að endingu reisa 40m hátt mastur á toppi fellsins. Ef hins vegar framkvæmdir hefjast á landsbyggðinni af einhverju tagi eru allir mættir með skilti, borða, handjárn og tjaldbúðir.
Engir atvinnuleytendur á Suðurnesjum?
Smáfuglarnir hafa oft látið orðið „atvinnuleitendur“ angra sig en með því er verið að gera atvinnuleysi þægilegra fyrir þá sem ekki hafa vinnu. Letin er gerð þægilegri og afsakanlegri. Er ekki sá sem er atvinnuleitandi samkvæmt orðsins hljóðan að vera að leita sér að vinnu? Ekki virðist raunin vera sú á Suðurnesjum þar sem fimm sóttu um 11 auglýstar stöður á saumastofu Víkurprjóns.
Heyrðu heimsmarkaðir ekki í Össuri og Oddnýju?
Smáfuglarnir sjá að evran hefur ekki verið veikari gagnvart pundi í bráðum fjögur ár. Engu líkara er en að orð Össurar Skarphéðinssonar og Oddnýjar Harðardóttur um skýringar á vanda evrusvæðisins hafi ekki náð eyrum heimsins. Þetta er furðulegt og hlítur að vera misskilningur.
RÚV þagði um ásakanir forseta í sinn garð
Smáfuglarnir lesa í Vefþjóðviljanum athyglisverða staðreynd. Fréttastofa RÚV nefndi það ekki einu orði að forseti Íslands hafi borið fréttastofuna þungum sökum þess efnis að fréttastofan gangi erinda tiltekins frambjóðanda. Vefþjóðviljinn segir: Þessar ásakanir eru alvarlegar og sérstaklega fréttnæmt að sá, sem ber þær fram á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, sé forseti Íslands.
Þóra Arnórsdóttir var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn
Smáfuglarnir sjá að Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi Samfylkingarinnar, reynir nú að þvo af sér fortíð sína í vinstriflokkunum. Aðeins nokkrir dagar eru frá því að gamall listi yfir kennara í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar fór á flakk á netinu og Þóra neitaði að hafa kennt í skólanum. Ekki voru netverjar með frekari sönnunargögn svo málið féll sumpart niður.
Smáfuglarnir furða sig á því að umræðu um refsidóm Svavars Halldórssonar, maka forsetaframbjóðanda Samfylkingarinnar Þóru Arnórsdóttur, skuli vera koðnuð niður. Hvað sem segja má um Svavar Halldórsson nú þá breytir það ekki því að hann hefur hlotið alvarlegan dóm fyrir alvarlegt brot. Forseti Íslands er æðsti embættismaður landsins og hefur með höndum að staðfesta lög frá Alþingi.