amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:18
 
 
Fuglahvísl birtist 27. ágúst 2010 klukkan 14:24

Öfgar ungra vinstri grænna - telja árásirnar 11. september vera fals

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Í stjórn Ungra Vinstri grænna situr maður að nafni Tómas Gabríel Benjamín og skrifar hann pistil á heimasíðu hreyfingarinnar. Þar veltir hann vöngum yfir öfgamönnum sem hann telur vera rót hins illa. Hvað sem segja má um þá skoðun Tómasar hnutu smáfuglarnir um eina efnisgrein í pistlinum:

Okkur er talið trú um að fyrir tæplega níu árum hafi hópur af öfgamúslimum valdið geysilega miklum skaða í Bandaríkjunum. Afleiðingar þessa mannskæðu árása voru ný alda af tortryggni gagnvart öfgamönnum og voru margir sem aðhylltust sömu trúarbrögð taldir með í þeim hópi.

UVG
Tómas Gabríel Benjamín, stjórnarmaður UVG

Er Tómas Gabríel á þeirri skoðun að árásirnar á tvíburaturnana í New York þann 11. september 2001 hafi verið eitthvað annað en árás hryðjuverkamanna? Er hann á því að yfirlýsingar Osama bin Ladens séu ósannar og að öðruvísi sé í pottinn búið en almennt sé vitað? Hverjir eiga að hafa „talið okkur trú um“ árásir hryðjuverkamannanna?

Smáfuglarnir sjá að ungliðahreyfing VG velur til trúnaðarstarfa fólk sem ekki aðeins heldur að þarfir einstaklinganna (framboð og eftirspurn) séu helsta meinsemd samfélagsins heldur telur að stærstu hryðjuverkaárásir samtímans hafi verið einhvers konar fals sem „okkur er talið trú um“.

Stendur stjórn UVG ritara sínum að baki í þeirri skoðun að árásirnar 11. september hafi verið eitthvað annað en árás hryðjuverkasamtakanna sem lýstu þeim á hendur sér?

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX