Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Smáfuglarnir fengu senda svonefnda Kynungabók sem menntamálaráðuneytið gaf út og er ætlað ungu fólki en í bókinni er farið yfir helstu kreddur femínista. Bókin boðar m.a. að jafnrétti skuli vera á öllum sviðum og aldrei megi gefa afslátt af þeirri kröfu. Það vakti því furðu smáfuglanna að sjá að sú regla virðist gilda um alla aðra en menntamálráðuneytið en höfundar bókarinnar eru fimm konur og enginn karl - 5 á móti 0.
Því til viðbótar var Hugleikur Dagsson fenginn til að myndskreyta bókina en hann er sá íslenski listamaður sem sýnt hefur konum og jafnréttisbaráttunni fádæma óvirðingu með teikningum sínum af grófum kynlífsathöfnum og öðrum ósóma. Ekki er þó vitað hvort sú staðreynd fékk höfunda Kynungabókar til að velja hann til myndskreytinganna.
Í bókinni er margt sem orkar tvímælis og engu líkara en að ritið sé ætlað til dreifingar á fundum femínista. Ætla smáfuglarnir því til sannindamerkis að nefna nokkur dæmi úr bókinni:
Hvernig ætli standi á því að hið opinbera standi að útgáfu áróðursrita þröngs hóp femínista? Ætli það sé markmið menntamálaráðuneytisins að fá alla nemendur í skólum til að skoða vini sína og skólablöðin með „kynjagleraugum“? Ætlar hið opinbera að nota skattfé til þess að planta fræjum neikvæðni og biturðar í skólum landsins með álíka útgáfu? Getur verið að bókin hvetji ung börn til þess að skoða bekkjarsystkini sín „út frá kynjahugmyndum“?
Hitt er svo jafnvel ótrúlegra og það eru upphafsorð bókarinnar en þar segir að „í ritinu [séu] hnitmiðaðar upplýsingar úr rannsóknum, gagnagrunnum, lögum og reglugerðum“. Mun það vera í fyrsta sinn sem sá rökstuðningur er lagður fram að eitthvað sé úr gagnagrunni og þar með hafi gildi í sjálfu sér. Með sömu rökum mætti gefa bók gildi af því að hún væri úr bókahillu.
Smáfuglarnir frábiðja sér að öfgafemínistar komist inn í grunn- og menntaskóla landsins með áróður sinn í ritum kostuðum af hinu opinbera. Hitt er svo sjálfstætt rannsóknarefni að athuga hvers vegna höfundar bókarinnar taka niður „kynjagleraugun“ á fundum ritnefndar en ætla öllum öðrum að nota gleraugun öllum stundum.
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.