Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Jóhann Hauksson hefur í gegnum árin verið harðasti stuðningsmaður Baugsklíkunnar og gengið lengra en flestir í að verja þá í daglegri umræðu fjölmiðla. Jóhann var með útvarpsþáttinn Morgunhaninn á Útvarpi Sögu þar sem hann hélt uppteknum hætti og varði Baugsmenn. Nú hefur komið í ljós að Baugur Group kostaði þáttinn og greiddi laun til Jóhanns. Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, segir við Morgunblaðið:
Á sínum tíma leigði Baugur Group tvo tíma af okkur á morgnana, og þeir völdu sinn blaðamann til að sjá um þann þátt, sem var Jóhann Hauksson. Þeir sáu um að greiða honum laun. Þetta fór aldrei neitt í gegnum mig, þeir greiddu launin beint til hans. Samningur var gerður um hvernig launagreiðslunum yrði háttað, þannig að þetta liggur alveg fyrir,
Arnþrúður heldur áfram:
En ég tel að Jóhann hafi verið inn á DV allar götur síðan hann hætti hér, einnig á kostnað Baugs. Jóhann hefur alltaf haft þennan háttinn á, hann fer inn á fjölmiðla, finnur sér stað og fær greidd laun frá Baugi og tengdum aðilum. Baugsmenn kosta blaðamenn á ýmsum fjölmiðlum í dag, til að mynda Pressunni
Af orðum Arnþrúðar má ljóst vera að Baugur lét sér ekki nægja að greiða fyrir útgáfu allra sinna miðla heldur var með menn á launaskrá á öðrum miðlum. Jóhann Hauksson hefur árum saman slegið ryki í augu lesenda og hlustenda og upplýsti aldrei um launagreiðslur Baugs.
Eftir fréttir af Baugsgreiðslum til Jóhanns Haukssonar er hæpið að nokkur taki frekar mark á fréttum og skrifum Jóhanns. Sjaldan hefur nokkur verið afhjúpaður sem leigupenni með viðlíka hætti.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.