amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. febrúar 2012 - 19:28
 
 
Fuglahvísl birtist 29. júlí 2010 klukkan 15:54

Heimdallur: Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móður­félagið væri frá aðildarríki ESB heldur en Kanada?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglunum barst ályktun stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Ályktunin skýtur föstum skotum að vinstristjórninni sem Heimdallur segir óstarfhæfa. Smáfuglarnir telja rétt að birta ályktunina í heild sinni.

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir harðlega fórnarkostnaðinn við að halda óstarfhæfri ríkisstjórn gangandi. Til þess eins að halda friðinn á stjórnarheimilinu hefur ríkisstjórnin tekið upp þá yfirlýstu stefnu að bregða með öllum tiltækum leiðum fæti fyrir lögmæt kaup Magma á eignarhluta í HS Orku. Kaupin eru í samræmi við lög sem hafa að markmiði að skilja á milli eignarhalds á auðlindum annars vegar og dreifingu hins vegar. Skattgreiðendur á Reykjanesi eru betur settir að þurfa ekki að taka áhættuna af rekstri orkufyrirtækisins enda er árangur stjórnmálamanna í rekstri orkufyrirtækja langt frá því að vera glæsilegur. Þá má minna á að sterkir íslenskir fjárfestar fengust ekki til þess að kaupa hlutinn, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnvalda til þess að koma málinu í þann farveg.

Kaup hins erlenda félags á hlut í HS Orku er erlend fjárfesting sem er mikilvæg fyrir íslensku þjóðina um þessar mundir. Velta má fyrir sér hvað hafi orðið um hinar þungu áhyggjur af ímynd Íslands og möguleikum á erlendri fjárfestingu sem stjórnarliðar báru fyrir sig til að réttlæta samþykkt ríkisábyrgðar fyrir hinum vonda Icesave-samning sem fjármálaráðherra staðfesti í fyrra. Icesave-málið er óleyst en ríkisstjórnin hefur tekið að sér á eigin spýtur að bola erlendum fjárfestum úr landi.

Sjónarmið um að þjóðerni kaupandans skipti máli eru ekki málefnaleg. Spyrja má hvort ríkisstjórn sem kennir sig við norræna velferð treysti ekki félagi skráðu í Svíþjóð? Treystir ríkisstjórnin sem hefur tekið stefnu á Evrópusambandið ekki reglum Evrópuréttarins um heimilisfesti félaga og fyrirtækja? Væri málið í reynd eitthvað öðruvísi ef móðurfélagið væri frá aðildarríki Evrópusambandsins heldur en Kanada?

Heimdallur hvetur ríkisstjórnina til þess að halda betur á þessu máli og láta af tilraunum sínum til að gera út af við eðlileg viðskipti um eignarhlut í þessu fyrirtæki.

Smáfuglarnir taka undir skoðanir Heimdellinga. Andstaðan við kaup Magma eru fátt annað en þjóðernishyggja sem bitnar verst á þeim sem hún á að vernda - Íslendingum. Þeir sem efast um það geta horft til landa þar sem erlend fjárfesting er minnst í heiminum samkvæmt Alþjóðabankanum.

Í stuttu máli eru ríkustu þjóðir heims með mesta erlenda fjárfestingu og fátækustu þjóðir heims með minnsta. Það er gott að vita hvert vinstristjórnin stefnir.

 
Meira fuglahvísl

Útflutt skyr ekki ríkisstyrkt

Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Lands­sambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlands­markaði.

Nýr sími fréttastofu RÚV

Smáfuglunum barst áríðandi tilkynning frá fréttastofu RÚV um nýtt símanúmer frétta­stjórnar. Í tilkynningu er breytingin sögð stytta boðleiðir og einfalda efnislega rit­stjórn. Nýtt símanúmer er 414-2200.

Kópavogsbúar anda léttar - bæjar­stjórn frá í þrjár vikur

Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjar­stjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjar­stjórnin sé ekki að störfum.

Nýr Jón Steinsson

Jón Steinsson, hag­fræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávar­útvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX