amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. september 2010 - 17:07
 
 
Fuglahvísl birtist 29. júlí 2010 klukkan 11:29

Tengsl Elíasar Jóns og Þórðar Snæs

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 
Elías Jón Guðjónsson vildi leka upplýsingum til Þórðar Snæs blaðamanns Viðskiptablaðsins. Sagði áætlun þar um \"tussufína\".

Margir hafa velt fyrir sér hvernig tengslum spunameistara vinstristjórnarinnar sé háttað. Fram kom í bréfi Elíasar Jóns að rétt væri að setja tóninn fyrir fjölmiðla með því að leka innihaldi fundar um Magma Energy til blaðamanns að nafni „Doddi“. Sá reyndist vera Þórður Snær Júlíusson á Viðskiptablaðinu.

Tengsl þeirra eru einföld þegar betur er að gáð. Þeir unnu saman á Blaðinu sem gefið var út til skamms tíma í Reykjavík. Því næst unnu þeir saman á 24 stundum sem varð til á rústum Blaðsins. Svo skildu leiðir og Þórður fluttist á Morgunblaðið en Elías Jón fór yfir á netmiðla Vinstri grænna.

Smáfuglarnir sjá að þeir eru nú sameinaðir á ný - hver á sínum stað í spunavél vinstristjórnarinnar.

 
Meira fuglahvísl

Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun

Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðis­manna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.

Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar

Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.

Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?

Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.

Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðar­atkvæða­greiðslunni?

Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðar­manni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.

Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum

Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabanka­stjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabanka­stjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.

Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstri­stjórn sem nú situr og kennir sig við áður­nefnda velferð.

Óli Björn sterkur á Alþingi

Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðis­flokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtaks­sjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignar­halds­félagið Vestia til Framtaks­sjóðs Íslands.

Össur: Framsókn í „pólitísku göturæsi“

Þingmenn undruðust í umræðum um frumvarp um breytingar á stjórnar­ráðinu á Alþingi í gær, hve illa Össur Skarphéðinsson brást við ræðu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknar­flokksins. Vigdís taldi Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkis­stjórnina halda illa á málinu og á skjön við allt, sem eðlilegt væri miðað við uppleggið um meðferð á skýrslu rannsóknar­nefndar Alþingis.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX