amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Þriðjudagurinn 7. febrúar 2012 - 09:09
 
 
Fuglahvísl birtist 29. júlí 2010 klukkan 11:22

Hvar eru femínistarnir?

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Smáfuglarnir spurðu fyrir nokkrum dögum að því hvar femínistar VG væru staddir nú þegar aðstoðarmaður menntamálaráðherra Vinstri Grænna notaði orðfærið „tussufínt“ í bréfi sínu innan stjórnarráðsins.

Femínistinn.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir var helsta talskona Femínistafélagsins. Hún þegir þunnu hljóði um ummæli Elíasar Jóns enda fékk hún nýlega starf hjá Steingrími án auglýsingar.

Femínistar innan VG hafa notað hvert tækifæri til þess að rísa upp á afturlappirnar og saka hinn og þennan um kvenfyrirlitningu við minnsta tilefni. Þá er ónefnt sérstakt Femínistafélag sem hefur látið fá mál frá sér sleppa.

Innan VG leiðir Sóley Tómasdóttir femínista og innan Femínistafélagsins er Katrín Anna Guðmundsdóttir talskona til margra ára. Hvað veldur því að nú þegja þær báðar þunnu hljóði?

Skýringin er sú að Sóley Tómasdóttir hlýðir boði Steingríms J. enda löskuð eftir slæma útreið í borgarstjórnarkosningum. Steingrímur réð sjálfur Elías Jón Guðjónsson sem fjölmiðlafulltrúa sinn án auglýsingar og flutti hann svo yfir í menntamálaráðuneytið einnig án auglýsingar. Katrín Anna Guðmundsdóttir fékk starf hjá Steingrími við að kyngreina fjárlögin og aftur var starfið veitt án auglýsingar. Varla slær Katrín Anna á klíkutengslin við Steingrím til að standa með femínismanum?

Smáfuglarnir sjá á þessu að enn og aftur sanna forystukonur femínista að það eru hugsjónir sem skipta máli en ekki klíkuskapurinn.

 
Meira fuglahvísl

Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?

Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.

Leikhús eða sjúkrahús

Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobs­dóttir menntamála­ráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.

Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana

Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...

Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna

Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.

ESB fáni á landsliðsbúninga

Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...

Ögmundur slær út bankamennina

Smáfuglarnir rákust á ummæli Ögmundar Jónassonar, sem stýrði Lífeyris­sjóði starfsmanna ríkisinsn (LSR) fram af bjargbrúninni í góðærinu.

Bók stjúpu Egils slátrað

Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.

Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV

Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX