amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Laugardagurinn 4. febrúar 2012 - 15:46
 
 
Fuglahvísl birtist 28. júlí 2010 klukkan 17:09

„Óþolandi hnýsni um einkahagi“

 
 
 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Frjálshyggjufélagið er merkilegur félagsskapur sem oftar en ekki þorir að segja það sem aðrir vilja ekki snerta á. Þannig gagnrýnir félagið nú framlagningu á tekjuupplýsingum einstaklinga og telur félagið það til mannréttindabrota að birta upplýsingarnar. Á vef Frjálshyggjufélagsins segir undir fyrirsögninni Óþolandi hnýsni um einkahagi:

Nú byrjar hin árlegi ófögnuður þegar ríkisvaldið opinberar tekjur landsmanna, eftir að hafa hrifsað drjúgan hluta þeirra með ofbeldi. Hvers vegna má dugmikið eljusamt fólk ekki eiga sínar tekjur í friði fyrir hnýsnu fólki? Opinberar álagningarskrár eru til þess fallnar að ala á öfund. Það eru mannréttindi að fá að hafa sín fjármál útaf fyrir sig.

Undir þetta hljóta margir að taka. Til hvers er vandlega staðið að öryggi bankareikninga og hver einstaklingur þarf að ganga um með auðkennislykil á sér öllum stundum til að komast í eigin upplýsingar? Hví eru lán og bankaupplýsingar trúnaðarmál? Af hverju þurfa starfsmenn banka að skrifa undir trúnaðarsamning um að virða bankaleynd o.s.frv.?

Skatturinn leggur mikið upp úr öryggi við framtalsgerð og sendir veflykil bréfleiðis til að tryggja að hann berist örugglega aðeins þeim einstakling sem telur fram. Skatturinn krefst þess að valið sé flókið lykilorð að framtalskerfi þeirra svo að óviðkomandi komist ekki í gögn einstaklinga.

Trúnaður virðist skipta miklu þegar einstaklingar skila inn gögnum en engu þegar gögnin eru komin til skattsins - þá eru þau tekin saman og send fjölmiðlum.

 
Meira fuglahvísl

Sigrún Davíðs­dóttir uppvís að ósannindum?

Brynjar Níelsson, formaður Lögmanna­félags Íslands, skrifaði fyrir skömmu pistil þar sem hann rakti hvernig Sigrún Davíðs­dóttir, pistlahöfundur Ríkisútvarpsins og einn tíðasti gesturinn í Silfri Egils, var klappstýra útrásarinnar fyrir hrun og einn helsti gagnrýnandi útrásarvíkinganna eftir hrun. Sigrún sveiflaði sér fljótt og fimlega af einum vagninum á annan.

Postularnir tólf hjá Agli

Viðskiptablaðið birti 29. janúar 2012 mjög fróðlegt yfirlit yfir viðmælendur í Silfri Egils frá hruninu haustið 2008. Þar sést hverjir eru tíðustu gestirnir (í sviga hversu oft þeir komu þar fram). Þetta eru tólf postular: 1. Ólafur Arnarson (13), óyfirlýstur blaðafulltrúi Pálma í Fons, sem b...

Sjálfsréttlæting útvarps­stjóra

Smáfuglarnir lásu aftur grein Páls Magnússonar sem birtist í Morgunblaðinu þar sem hann missir tökin og úthúðar rit­stjóra blaðsins með slíkum ofstopa að ef greinin hefði komið frá einhverjum óþekktari einstaklingi hefði henni verið hafnað eða hugsanlega birt í dálknum „Bréf til blaðsins“. Smáfuglarn...

Þögn Egils um Evu Joly

Smáfuglarnir eru hissa á því að helsti aðdáandi Evu Joly og sá sem tryggði (með dagskrárvaldi sínu) að hún kæmist á laun hins opinbera og fengi greiddar 325 þúsund krónur á dag í laun skuli nú þegja þunnu hljóði um nýjustu fréttir af Evu í heimspressunni. Sagt er frá því í fréttum að 51% Frakka telji að hún sé óheiðarleg og 78% að hún ráði ekki við starf sitt.

Frasabók Hrannars B.

Smáfuglarnir sjá að væntanlegt er tímamótaverk eftir Hrannar B. Arnarsson, fyrrum eiganda Arnarson og Hjörvar sf. og núverandi aðstoðar­mann Jóhönnu Sigurðardóttur. Á forsíðu bókarinnar má sjá nokkra af frösum sem vinstri­stjórnin notar og þá helst Jóhanna. Smáfuglarnir efast ekki um að bókin verð...

Nýr Bjarni Ben

Smáfuglarnir lásu góða grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu í morgun en þar svarar hann málefnalega dylgjum Hallgríms Helgasonar, sem seldi ómálað málverk á tugi milljóna þegar útrásin var í algleymingi, og Björns Ólafs Hallgrímssonar lögmanns. Um efni greinarinnar þarf ekki að fjölyrða en eitt hnutu smáfuglarnir um.

Atvinnuþátttaka aldrei minni

Smáfuglarnir lesa í fréttum að atvinnuþátttaka sé sú minnsta frá því mælingar hófust árið 1991. Þetta eru merkilegar fréttir í ljósi þess að aldrei hefur þörf fólks fyrir fé verið meiri og einmitt nú þegar heimilin hafa þolað mikla rýrnun eigna og skarpa hækkun verðlags umfram launahækkanir. Ef allt...

Jóhanna hrædd við kosningar

Smáfuglarnir sjá á orðfæri Jóhönnu að fáir eru hræddari við kosningar en leiðtogi Samfylkingar­innar. Hún segir við fjölmiðla þessa dagana að „íhaldinu megi ekki takast að reka fleig í ríkis­stjórnina“ með landsdómsmálinu. Þannig skapar Jóhanna þá stöðu að vinstri­stjórnin verði að hanga saman á lyginni einni saman svo halda megi sjálfstæðis­mönnum frá ríkis­stjórn.

 
 
©2012 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX