Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.


Smáfuglarnir lásu hjá DV að umboðsmaður skuldara, Runólfur Ágústsson, er í djúpri skuldasúpu. Félag á hans vegum skuldar um hálfan milljarð hjá Sparisjóði Keflavíkur og eru engar eignir eftir í félaginu. Þetta eru upplýsingar sem hvergi hafa komið fram annarsstaðar og eiga því blaðamanenn DV prik skilið fyrir að finna út úr þessu. DV segir:
Sparisjóðurinn í Keflavík þarf að afskrifa rúmlega 500 milljóna króna hlutabréfaskuld eignarhaldsfélags Runólfs Ágústssonar, nýráðins umboðsmanns skuldara og fyrrverandi rektors Háskólans á Bifröst, samkvæmt heimildum DV innan úr bankakerfinu. Félagið heitir Obduro ehf. og skuldaði það sparisjóðnum tæpar 530 milljónir króna í árslok 2008. Lánið var veitt til að kaupa hlutabréf í Icebank, Sparisjóðabanka Íslands.
Vísir tók svo málið upp og er það nú orðið svo að Ágúst neitar að tjá sig um málefni afskrifta og skulda sinna. Vísir segir svo frá:
Runólfur Ágústsson, umboðsmaður skuldara, vildi ekki tjá sig um skuld sem hann skildi eftir sig í eignarhaldsfélagi í aðdragandi hrunsins, í samtali við fréttastofu. Hann segir von á yfirlýsingu í dag vegna málsins.
Smáfuglarnir sjá að maðkur er í mysu umboðsmannsins. Varla getur verið að hann taki að sér starfið eftir að upplýst hefur verið um mögulegar afskriftir og skuldafen. Enn verra er að Runólfur neiti að tjá sig um málið enda nú orðinn opinber embættismaður og þarf því að standa skil á sínum málum til fjölmiðla og almennings.
Við svo bætist að málið verður stöðugt pínlegra fyrir Samfylkinguna sem sniðgekk fyrrum forstöðukonu ráðgjafastofu heimilanna sem sóttist eftir starfinu. Var það gert til að verðlauna Runólf Ágústsson fyrir pólitíska greiða eins og smáfuglarnir hafa áður sagt frá.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.
Í janúar 2009 birtu smáfuglarnir myndband sem sett hafði verið á YouTube þar sem sá veruleiki hafði verið búinn til að Ísland inni til sigurs á handboltamóti en í erlendum fréttum kæmi ESB til með að eigna sér sigurinn og segja hann „sigur ESB á mótinu“. Smáfuglunum bárust nokkur bréf þar sem myn...
Smáfuglunum þótti ámátlegt að hlusta á Egil Helgason í bókmenntaþætti sínum Kiljunni grátbiðja álitsgjafa sína, Pál Baldvin Baldvinsson og Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að gefa bók stjúpmóður sinnar, Sigrúnar Davíðsdóttur, jákvæða umsögn. En þau Páll Baldvin og Kolbrún hökkuðu í sig bók Sigrúnar, sem þykir afspyrnu vond skáldsaga.
Enn eitt dæmið um hlutdrægni RÚV
Skafti Harðarson rakti nýlega í fróðlegum pistli hvernig pistlahöfundar RÚV nota tækifærið þegar þeir segja frá atburðum erlendis að koma að áróðri um innanlandsmál.