Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fór mikinn í Kastljósi 27. júlí vegna Magma. Sagðist hann fús til að verja fé skattgreiðenda til að bjarga vinstri-grænum út úr klúðrinu, bara ef hann mætti það. Hann ætlaði sko að breyta lögum, svo að hann fengi heimild til slíkra fjáfestinga.
Steingrímur J. taldi heillaráð fyrir lífeyrissjóði að festa fé í Magma og virtist undrandi á því í spuna sínum, hvers vegna fé lífeyriseigenda hefði ekki verið ráðstafað í þessu skyni, þarna væru sko gull og grænir skógar fyrir þá.
RÚV fór á kreik til að afla frétta af því, hvort lífeyrissjóðir ætluðu ekki að fara að ráðum Steingríms J. og að morgni 28. júlí birtist frétt með samtali við Finnboga Jónsson, sem stýrir Framtakssjóðnum, fjárfestingasjóði lífeyrissjóða, sem ætlað er að taka átt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs. Á ruv.is má lesa:
„Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs segir að þegar hafi verið afgreitt í vetur hvort sjóðurinn fjárfesti í HS Orku. Þá hafi sjóðnum ekki hugnast að kaupa hlut í fyrirtækinu.“
Smáfuglarnir velta fyrir hvaða spunastrákar Steingríms J. gera nú til að bjarga meistaranum frá þessum spunaafleik sínum. Voru það strákapör að láta Steingrím J. ekki vita, að lífeyrissjóðirnir hefðu ekki áhuga á HS Orku?
Smáfuglunum barst eftirfarandi leiðrétting frá Landssambandi kúabænda og birta hana hér í heilu lagi: Á Íslandi er kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, líkt og í Noregi, aðildarríkjum ESB, Kanada og Japan, svo dæmi séu tekin. Á liðnu ári var kvótinn hér á landi 116 milljónir lítra mjólkur og er opinber stuðningur greiddur út á það magn, sem miðast við sölu á innanlandsmarkaði.
Kópavogsbúar anda léttar - bæjarstjórn frá í þrjár vikur
Smáfuglarnir sjá að það er satt sem sagt er; það er gott að búa í Kópavogi. Kópavogsbúar hafa verið svo heppnir síðustu þrjár vikurnar að meirihluti bæjarstjórnar sprakk og hefur ekki náð saman um nýjan meirihluta. Í ljós hefur komið að engu skiptir þó bæjarstjórnin sé ekki að störfum.
Jón Steinsson, hagfræðingur, sem reglulega leggur til hækkun skatta og árásir á hagkvæmt skipulag í sjávarútvegi er mættur á ný í íslenska umræðu. Jón býr í Bandaríkjunum og hefur gert um árabil þar sem frelsi í viðskiptum er mikið og einkaeign auðlinda sjálfgefin. Hann kýs að freista gæfunnar í frjálsu skipulagi sem hann telur oft að henti ekki Íslendingum.
Niðurgreiðir íslenska ríkið skyr fyrir New York búa?
Smáfuglarnir hafa velt fyrir sér útflutnigni Mjólkursamsölunnar á Skyr vörum til Ameríku. Nú er sögð frétt af því á vef Morgunblaðsins.
Smáfuglarnir rákust á áhugaverða frétt RÚV þar sem segir með feitletrun smáfuglanna: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til haustið 2009 við fjárlagagerð að Þjóðleikhúsinu, Þjóðminjasafninu og Listasafni íslands yrði lokað tímabundið í þrjú ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra greindi frá þessu á Alþingi fyrir helgi að sögn Fréttablaðsins.
Egill getur ekki svarað gagnrýni - ræðst því á smáfuglana
Egill Helgason virðist æfur yfir umfjöllun smáfuglanna og sakar þá um að vera „ómálefnalegir og meiðandi“. Vísar Egill þar til þess að smáfuglarnir fjölluðu um Kiljuþátt þar sem bók Sigrúnar Davíðsdóttur var til umfjöllunar og bentu á að hún væri fyrrum stjúpmóðir Egils. Egill segir um málið við Pre...
Mörður reynir að afvegaleiða umræðuna
Mörður Árnason endurtekur í bloggi sínu sömu spurningar og Bjarni Benediktsson hefur margsvarað, síðast í skeleggri grein í Morgunblaðinu. Auðvitað meinar Mörður ekkert með þessu. Hann er aðeins að reyna að afvegaleiða umræðuna. Það er tvennt sem hann vill ekki ræða, telja smáfuglarnir.