amx@amx.is  -  Um AMX  -  Auglýsingar Miðvikudagurinn 8. september 2010 - 16:17
 
 
Fuglahvísl birtist 27. júlí 2010 klukkan 20:17

Steingrímur J. spinnur í Kastljósi til að halda lífi í ríkis­stjórninni

 
 
 
Um fuglahvísl

Smáfuglarnir koma víða við og hvísla um flest það sem mannlegt er. Þeir eiga erfitt með að þegja um það sem þeim er sagt enda gagnrýnir áhorfendur.



Meira fuglahvísl
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta
 

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þóttist koma af fjöllum í samtali við Þóru Arnórsdóttur í Kastljósi 27. júlí, þegar hún spurði hann um spunabréf aðstoðarmanns menntamálaráðherra vegna Magma-málsins. Hann sagðist ekki vita, hvað „einhverjir strákar“ væru að gera, Þóra minnti hann á, að þetta væru nú aðstoðarmenn ráðherra, þá sagði Steingrímur J. „já, stráklingar.“

Steingrímur J. reyndi þannig að klóra sig frá þeirri staðreynd, að ráðherrar vinstri-grænna og þingmenn leggja nú alla áherslu á að spinna þannig út frá niðurstöðu ráðherra í Magma-málinu, að þar hafi orðið einhver þáttaskil. Ríkisstjórnin lifi því áfram.

Sigurður Bogi
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, talar nú orðið ekki um Magma, án þess að minnast á lög frá 2007, þegar seldur var hlutur í orkuveitu Suðurnesja, án þess að ríkið mætti kaupa þann hlut. Steingrímur J. hefur setið í ríkisstjórn og verið fjármálaráðherra síðan 1. febrúar, 2009. Í ágúst 2009 ályktuðu vinstri-grænir um, að Magma mætti ekki eignast HS Orku.

Magma á nú 98% í HS Orku. Hefur það allt gerst í ráðherratíð Steingríms J. Nú segist hann hafa haft öðrum hnöppum að hneppa, það megi saka sig um mistök. Nú verði hins vegar gengið til þess að breyta lögum, þannig að þau verði í öðrum búningi en eftir 2007.

Verði samningur Magma talinn lögmætur eftir rannsókn, sem á að fara fram á gerð hans og gildi, segir Steingrímur J., að ýmsar leiðir komi til greina - þá mætti setja framvirk lög (?) og skoða verði aðlögun Magma að þeim. Virða yrði meðalhóf, það mætti kaupa hlutinn eða fara í eignarnám. Þyrfti ekki að skapa ríkinu skaðabótaskyldu. Yrði ekki gripið til neinna aðgerða, kynni Magma, einkarisi í eigu erlendra aðila, að fara að keppa við innlend orkufyrirtæki. Ný lög gætu komið í veg fyrir það.

Ríkisstjórnin vildi láta rannsaka, hvort með kaupsamningi við Magma hefðu lög verið sniðgengin, hvort það væri í samræmi við lög um erlenda fjárfestingu að kenniltala væri geymd í skúffu í Svíþjóð, hvort Magma í Svíþjóð hefði orðið til með málamyndagerningi, hvort sænska aðferðin dygði til að skapa fjárfestingarrétt á evrópska efnahagssvæðinu, hvort Magma væri í raun kanadískt.

Þá væri ekki unnt að útiloka, að samningar tækjust um viðunandi niðurstöðu við Magma.

Ef þetta er ekki spuni til þess eins að halda í völd og ríkisstjórn í pólitískri öndunarvél, vita smáfuglarnir ekki, hvernig staðið er að því að spinna á pólitískum vettvangi.

 
Meira fuglahvísl

Pressan gleymir Þorgerði fyrir hrun

Pressan gerði fyrir stuttu, undir fomerkjum „Kaffistofunnar“, tilraun til þess að styðja við endurkomu Þorgerðar Katrínar á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn en skoðanakannanir hafa sýnt mikla andstöðu við endurkomuna og er um það rætt meðal sjálfstæðis­manna að Þorgerður verði að sækja nýtt umboð í prófkjöri og svo kosningum áður en hún tekur sæti á þingi.

Leigupennar þegja um starfslokasamning Jóhannesar

Tveir leigupennar hafa að undanförnu skrifað varnargreinar fyrir Baugsfeðga og þá sem voru þeim næstir árin fyrir hrun. Þeir hafa að öllu jöfnu skrifað um sömu hlutina með stuttu mililbili og eru því samstíga í því að skrifa fyrir kaupinu sínu. Upplýst hefur verið um háar greiðslur til þeirra.

Hver greiðir fyrir monthús Jóhannesar í Bónus?

Jóhannes í Bónus reisti sér monthús á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Nú kemur í ljós, að hann átti ekki fyrir því og lét Gaum greiða það fyrir sig. Höllin er nú í kyrrstöðu vegna samnings Arion banka og Gaums.

Ætlar enginn að segja Svavari frá þjóðar­atkvæða­greiðslunni?

Svavar Gestsson er þess heiðurs aðnjótandi að hafa ásamt heimspekilærðum aðstoðar­manni sínum gert versta samning Íslandssögunnar sem í daglegu tali er nefndur Icesave samningurinn.

Már Guðmundsson verst kommúnistastimplinum

Viðskiptablaðið birti í síðustu viku mola um myndband af kommúnistahugsjón Más Guðmundssonar seðlabanka­stjóra en í Viðskiptablaðinu sagði: Myndband af Má Guðmundssyni seðlabanka­stjóra þar sem hann er kallaður kommúnistinn í Seðlabankanum gengur á milli manna á YouTube. Þar er farið yfir sögu Más allt frá því hann var róttæklingur á yngri árum.

Listi yfir fyrirtæki á valdi hins opinbera

Smáfuglarnir velta fyrir sér hvort norræn velferð felist í baktjaldamakki og leynibrögðum með eignir sem hið opinbera hefur leyst til sín af frjálsum markaði. Í það minnsta er sú aðferð notuð er hjá þeirri vinstri­stjórn sem nú situr og kennir sig við áður­nefnda velferð.

Óli Björn sterkur á Alþingi

Smáfuglarnir sjá að svo virðist sem Sjálfstæðis­flokkurinn sé ekki dauður úr öllum æðum. Óli Björn Kárason hóf í morgun umræðu á Alþingi um fjárfestingar Framtaks­sjóðs Íslands og þá staðreynd að reglur voru þverbrotnar þegar Landsbankinn, ríkisbanki, seldi eignar­halds­félagið Vestia til Framtaks­sjóðs Íslands.

Össur: Framsókn í „pólitísku göturæsi“

Þingmenn undruðust í umræðum um frumvarp um breytingar á stjórnar­ráðinu á Alþingi í gær, hve illa Össur Skarphéðinsson brást við ræðu Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknar­flokksins. Vigdís taldi Jóhönnu Sigurðardóttur og ríkis­stjórnina halda illa á málinu og á skjön við allt, sem eðlilegt væri miðað við uppleggið um meðferð á skýrslu rannsóknar­nefndar Alþingis.

 
 
©2010 Vefmiðlun ehf - Skipholti 50c - 105 Reykjavík - - RSS - Um AMX